Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar 20. október 2026 15:45 Sama foreldrið og hefur eytt tíu mínútum í að leita að símanum sínum á meðan það er að tala í hann, hefur það verkefni að halda utan um heila fjölskyldu. Muna eftir íþróttatöskunni, fylgjast með skilaboðum frá skólanum, skipuleggja vikuna, halda utan um læknistíma, sjá til þess að allir fái að borða og helst halda ró sinni á meðan. Og auðvitað vera þolinmótt, skilningsríkt og alltaf með réttu uppeldisaðferðirnar á hreinu. Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis? Við tölum mikið um börn með ADHD. Hvernig við getum stutt þau, hjálpað þeim með skipulag, tilfinningastjórnun, athygli og daglegar áskoranir. Og það er auðvitað mikilvægt. En hvað með foreldrana? ADHD hverfur nefnilega ekki við átján ára aldur. Það fylgir okkur áfram inn í fullorðinsárin, atvinnulífið, samböndin og foreldrahlutverkið. Og við fáum ekki betri stýrifærni í sængurgjöf þegar við eignumst börn. Þegar ADHD mætir ADHD Á heimilum þar sem bæði foreldri og barn eru með ADHD geta orðið ansi áhugaverðir árekstrar. Barnið á erfitt með að skipta um verkefni. Foreldrið á erfitt með að bíða. Barnið gleymir fyrirmælunum. Foreldrið gleymir að það var búið að gefa þau. Barnið á erfitt með að stjórna tilfinningunum. Foreldrið er sjálft komið alveg að þolmörkum. Og áður en maður veit af eru tveir einstaklingar, sem báðir þurfa stuðning við að stjórna viðbrögðum sínum, komnir í rökræður sem myndu sóma sig vel á Alþingi. Það er auðvelt að sjá bara hegðun barnsins og hugsa að það þurfi að læra að hlusta betur, bíða eða sýna meiri sjálfstjórn. En hvað með foreldrið? Það þarf líka stuðning, skilning og stundum alveg sömu verkfærin og við erum að kenna barninu. Þetta snýst ekki um að foreldrar eigi að sleppa því að setja mörk eða bera ábyrgð. Þvert á móti. Skýr mörk, góð tengsl og fyrirsjáanleiki skipta miklu máli. En við þurfum að finna leiðir sem bæði barnið og foreldrið ráða við að nota. Það er lítið gagn í fullkomnu skipulagi sem enginn á heimilinu nær að fylgja. „Ég veit þetta alveg, en af hverju geri ég þetta ekki?“ Við vitum að það hjálpar að undirbúa morgnana kvöldið áður. Við vitum að það er betra að tala rólega við barnið en að kalla úr eldhúsinu í fimmta sinn. Við vitum að skýr fyrirmæli, fyrirsjáanleiki og góðar venjur geta gert daglegt líf auðveldara. En svo er klukkan 7:45. Eitt barnið finnur ekki skóna sína, annað man allt í einu eftir einhverju sem átti að koma með í skólann. Nestisboxið er horfið, síminn hringir og þú ert að reyna að muna hvað það var sem þú ætlaðir að gera þegar þú gekkst inn í eldhús. Þú ert búin að lesa allt um jákvætt uppeldi, veist um mikilvægi þess að halda ró sinni, gefa skýr fyrirmæli og sýna þolinmæði. En núna langar þig helst að öskra: „GETA ALLIR BARA FARIÐ Í SKÓNA SÍNA!“ Og það sem verra er, þú heyrir þig jafnvel gera það. Þarna erum við komin að stýrifærni heilans. Stýrifærni er meðal annars það sem hjálpar okkur að skipuleggja, hefja verkefni, halda utan um upplýsingar, stjórna tilfinningum og stoppa okkur af áður en við bregðumst við. Þetta eru einmitt þættir sem geta reynst fólki með ADHD erfiðir. Og þegar álagið eykst getur orðið enn erfiðara að nýta þessa færni. Það er því ekki endilega skortur á þekkingu eða vilja þegar foreldri nær ekki að nota aðferð sem það veit að virkar. Stundum er einfaldlega allt kerfið komið í yfirvinnu. Og það er erfitt að halda ró sinni þegar eigin heilinn er kominn á yfirsnúning. Það þarf ekki alltaf fleiri ráð Eitt af því sem ég hef hugsað mikið um er hversu dugleg við erum að gefa foreldrum ráð. Við kennum þeim að búa til sjónrænt skipulag, undirbúa breytingar, nota jákvæða styrkingu, velja baráttur og gefa skýr fyrirmæli. Allt eru þetta góðar og gagnlegar aðferðir. En hvað gerist þegar foreldrið er sjálft orðið svo þreytt og yfirhlaðið að það ræður varla við að halda utan um daginn? Þá getur enn einn listinn yfir það sem það ætti að gera orðið enn eitt verkefnið sem það nær ekki að klára. Í fræðum um nám fullorðinna er meðal annars fjallað um hvernig álag og sá kraftur sem fólk hefur til ráðstöfunar hafa áhrif á svigrúm þess til að læra og gera breytingar. Þetta finnst mér sérstaklega mikilvægt þegar við hugsum um foreldra með ADHD. Stundum er besta ráðið ekki að bæta einhverju við heldur að taka eitthvað út. Fækka verkefnum. Einfalda morgnana. Setja færri markmið. Fá meiri stuðning. Velja eina breytingu í einu. Og stundum þarf einfaldlega að viðurkenna að heimilið þarf ekki að vera fullkomlega skipulagt til að vera gott heimili. Börn þurfa ekki fullkomna foreldra Það er auðvelt að verða upptekinn af því sem gengur ekki þegar ADHD er hluti af fjölskyldulífinu. Gleymdum tímum. Ókláruðum verkefnum. Of miklu tuði. Pirringi. Samviskubiti. En foreldrahlutverkið snýst ekki bara um skipulag og framkvæmd. Það snýst líka um tengsl. Að sjá barnið sitt. Hlusta á það. Sýna því áhuga. Geta viðurkennt þegar maður bregst ekki rétt við og reynt aftur. Það er ekkert foreldri alltaf rólegt og yfirvegað, hvort sem það er með ADHD eða ekki. Það sem skiptir máli er ekki að gera aldrei mistök heldur hvað við gerum eftir þau. Við getum sagt við barnið: „Ég varð of pirruð/aður áðan og hefði átt að bregðast öðruvísi við. Fyrirgefðu.“ Það er ekki veikleikamerki. Það er líka leið til að kenna barninu að taka ábyrgð, sýna skilning og laga samskipti þegar eitthvað fer úrskeiðis. Og kannski er það einmitt ein mikilvægasta fyrirmyndin sem við getum verið. Foreldrar þurfa líka að fá að vera manneskjur Í umræðunni um ADHD og uppeldi megum við ekki gleyma foreldrunum sjálfum. Við getum ekki ætlast til þess að foreldri sem er undir stöðugu álagi sýni endalausa þolinmæði, skipulag og sjálfstjórn án þess að skoða hvaða stuðning það hefur. Það þarf líka að horfa á aðstæður fjölskyldunnar, álagið, samskiptin og þær kröfur sem gerðar eru til hennar. Foreldri með ADHD er ekki bara foreldri sem gleymir, frestar eða missir þolinmæðina. Það er líka manneskja með sína reynslu, styrkleika, þekkingu og væntumþykju. Foreldrahlutverkið er krefjandi og mikilvægt að muna að sýna sjálfum sér mildi í gegnum það. Höfundur er verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum, grunnskólakennari og móðir með ADHD. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóna Kristín Gunnarsdóttir Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun