„Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 17. október 2026 16:58 Eiður Smári Guðjohnsen á hliðarlínunni á Hlíðarenda í dag. Vísir/Guðmundur KA mátti þola 4-1 tap gegn Val á Hlíðarenda í dag í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla. Tapið reyndist dýrkeypt því með sigri Þórs gegn Stjörnunni er KA komið í fallsæti þegar aðeins ein umferð er eftir.
Eiður Smári Guðjohnsen, annar þjálfara KA, var að vonum svekktur með niðurstöðuna í leiknum en taldi sína menn hafa fengið færi til að gera betur í leiknum. „Bara svekktir, held ég, fyrst og fremst,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen eftir leikinn. KA fékk nokkur góð marktækifæri í fyrri hálfleik og átti meðal annars skot bæði í stöng og slá. Þjálfarinn horfði sérstaklega til þess að liðið hefði ekki náð að nýta færin sín. „Það er erfitt að segja að það hafi verið margt ábótavant í leiknum hjá okkur. Ég held að við séum aðallega svekktir yfir því að hafa ekki verið yfir í hálfleik, það hefði gert svo mikið fyrir okkur. Við fáum náttúrulega tækifæri, sköllum í slá og í rauninni í opið mark og á einhvern óskiljanlegan hátt náum við ekki að troða boltanum yfir línuna.“ Mikill vindur setti svip sinn á leikinn og gerði leikmönnum erfitt fyrir. Þjálfarinn vildi þó ekki kenna veðrinu um niðurstöðuna enda hefðu bæði lið þurft að glíma við sömu aðstæður. „Jú, jú, við ætlum ekkert að kvarta yfir því, það er sama fyrir bæði lið. En bauð oft og tíðum ekki upp á mikil gæði. Það vantaði kannski aðeins meiri einbeitingu í þessum aðstæðum á boltanum.“ KA á enn möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en staðan er erfið fyrir lokaumferðina. Eiður lagði áherslu á að liðið yrði að einbeita sér að verkefninu fram undan og klára sinn leik. „Við bara kyngjum þessum leik og klárum hann bara sem fyrst. Við förum yfir hann með strákunum á mánudaginn, hvað hefði betur mátt fara og svo verðum við að setja fulla einbeitingu í síðasta leikinn. Það þýðir ekkert fyrir okkur að vera að spá í því hvað er að gerast annars staðar. Við vorum ekkert að spá í því í dag og ætluðum bara að reyna að gera okkar, sem við gerðum á köflum.“ KA tekur á móti ÍBV í lokaumferðinni þar sem mikið verður undir. Eiður hefur trú á því að stuðningsmenn liðsins muni fjölmenna og skapa góða stemningu í kringum leikinn. „Ég hef ekki lent í öðru en geggjaðri stemningu fyrir norðan síðan að ég kom. Ég held það sé enginn vafi á því að við munum reyna að búa til sem bestu stemninguna og við sem lið munum bara standa undir henni,“ sagði Eiður að lokum. Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.
Besta deild karla KA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Finnur til með Arnari Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sjá meira