Innlent

Þakplötur að losna af í­þrótta­húsi í Grundar­firði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Verið er að laga þakið og plöturnar eru að losna af í rokinu.
Verið er að laga þakið og plöturnar eru að losna af í rokinu. Aðsend

Þakplötur eru byrjaðar að losna af íþróttahúsinu í Grundarfirði. Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins segir í samtali við Vísi að það sé orðið verulega hvasst en verktaki sé á svæðinu að skoða málið. 

„Þetta eru plöturnar sem eru að flettast af vestanverðu húsinu, við erum að fylgjast með en það er erfitt að komast að,“ segir hann og að það blási mikið af húsinu. Þakið sé hátt uppi og aðstæður því erfiðar.

Gul viðvörun tók gildi á svæðinu klukkan 11 og síðdegis í dag tekur appelsínugul viðvörun við. Varað hefur verið við ferðalögum á svæðinu og mögulegum vegalokunum. Þá hafa íbúar verið hvattir til að tryggja lausamuni.

Hinrik segir vinnu hafa verið í gangi á þakinu en þakið hafi verið fest. Hann segir verktaka á svæðinu vera að skoða aðstæður auk þess sem björgunarsveit er til taks.

Verulega hvasst er í Grundarfirði og á að vera enn hvassara á eftir. Aðsend

Tengdar fréttir

Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag

Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag þegar næsta lægð gengur yfir landið. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Suður-Grænland sé alldjúp og víðáttumikil lægð sem stjórni veðrinu hjá okkur í dag. Það verði vaxandi sunnan- og suðaustanátt, hvassviðri eða stormur síðdegis með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×