Körfubolti

Kane lendir um helgina

Valur Páll Eiríksson skrifar
Grindvíkingar geta skálað í kvöld. DeAndre Kane er á leiðinni.
Grindvíkingar geta skálað í kvöld. DeAndre Kane er á leiðinni. vísir/Guðmundur

Deandre Kane, leikmaður körfuboltaliðs Grindavíkur, lendir á Íslandi um helgina. Hann hefur leyst sín mál vestanhafs og verður að óbreyttu með liðinu í næstu umferð í Bónus-deild karla.

Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, staðfestir tíðindin við Vísi.

Kane á flug til Íslands um helgina, þó ekki í dag, og því missir hann af leik Grindavíkurliðsins við Val í Bónus-deild karla í kvöld.

Kane var tekinn fastur við komuna til Bandaríkjanna í vor örfáum dögum eftir að hann hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn með Grindvíkingum. Hann var tekinn fastur vegna meðlagsskuldar sem tengist faðernismáli og nokkrum mánuðum síðar er enn verið að vinna úr málinu.

Það virðist hins vegar loks hafa tekist að leysa úr málinu og Kane á flug til Íslands um helgina.

Grindvíkingar hafa gert ráð fyrir komu Kane í allt í sumar en Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, sagði hins vegar tvísýnt um komu hans til Íslands fyrir níu dögum síðan en þá hafði ekki náðst í Bandaríkjamanninn í nokkra daga.

„Jú, það er það. Og verður tvísýnna með hverjum deginum sem líður. Við höfum ekki náð í hann í einhverja fjóra daga núna og erum svona farnir að huga að því hvernig við bregðumst við ef hann kemur ekki. Þetta er persónulegt mál sem hefur tekið á hann og það er óljóst hvað verður. Við gefum þessu út daginn og sjáum svo til,“ sagði Jóhann Þór við Vísi þann 7. október síðastliðinn.

Tveimur dögum síðar, þann 9. október, var annar tónn kominn í Jóhann sem sagði þá við Vísi: „Við erum bara með fólk að vinna í þessu og hann er væntanlegur til landsins, vonandi sem fyrst.“

Það hafðist og Kane væntanlegur á næstu dögum. Hann gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir liðið á leiktíðinni þegar Grindavík fær Stjörnuna í heimsókn næsta fimmtudag.

Kane var hluti af Íslandsmeistaraliði Grindavíkur á síðustu leiktíð og hefur leikið með liðinu í þrjú tímabil. Hann hefur litað deildina mjög og er meðal bæði skemmtilegri og umdeildari leikmanna Bónus-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×