Erlent

Þrjú börn meðal fimm­tán látinna í á­rás á í­búðar­blokkir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Svifsprengja hæfði þessa íbúðarblokk. Einhver fjöldi íbúa lést.
Svifsprengja hæfði þessa íbúðarblokk. Einhver fjöldi íbúa lést. Getty

Fimmtán hið minnsta létust, þar af þrjú börn, þegar Rússar vörpuðu fimm svifsprengjum á úkraínsku borgina Saporíssjía í morgun. Sextán til viðbótar særðust og fleirra er saknað. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir Volódímír Selenskí Úkraínuforseta og viðbragðsaðilum að sprengjurnar hafi hæft íbúðarbyggingar í borginni. Selenskí segir Rússa jafnframt hafa gert árásir á þrettán önnur héruð Úkraínu í nótt.

Í myndbandi sem Selenskí deilir frá frá vettvangi sjást björgunaraðgerðir í fjölbýlishús sem er að mestu hrunið.

„Sprengjan hæfði jarðhæðina og hæðirnar fyrir ofan hrundu einfaldlega niður,“ sagði Regina Kharchenko, starfandi borgarstjóri, í samtali við úkraínska sjónvarpsstöð á vettvangi.

Meira en áttatíu manns taka þátt í leit og björgun. Búist er við að aðgerðir standi allan daginn og stöðva björgunarmenn vinnuna reglulega til að hlusta eftir hljóðum frá fólki sem kann að leynast undir rústunum.

Borgarstjórinn sagði Rússa hafa ráðist að hjarta borgarinnar. Meðal hinna látnu væru yngstu íbúarnir.

Trump rýfur einangrun Rússlands

Árásirnar voru gerðar fáeinum klukkustundum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulag við Rússa um innflutning á rússneskri díselolíu.

Selenskí hefur gagnrýnt samkomulagið harðlega og kallað það „afmælisgjöf“ til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Það jafngildi bandarískri fjárfestingu í stríðsrekstri Pútíns.

Í viðbrögðum við árásum næturinnar sagði Selenskí að Rússar túlkuðu sérhverja tilslökun á þrýstingi sem merki um að þeir gætu haldið stríðinu áfram.

„Rússland verður að skilja að binda þurfi enda á stríðið og til þess verður það að finna fyrir eigin tjóni,“ skrifaði hann á samfélagsmiðlum.

Mannskæðar árásir á borgara þrjá daga í röð

Saporissjía er í suðausturhluta Úkraínu, innan við sextán kílómetra frá víglínunni, og verður reglulega fyrir árásum rússneskra flygilda og eldflauga.

Árásin í morgun kemur í kjölfar tveggja annarra mannskæðra árása undanfarna daga. Á fimmtudaginn létust að minnsta kosti þrjátíu og þrír þegar rússneskar svifsprengjur hæfðu tvær almenningsrútur í Kramatorsk í Dónetskhéraði.

Daginn áður létust tuttugu og tveir, þar af fimm börn, þegar rússnesk eldflaug hæfði fjölbýlishús í bænum Pryluky austan við Kænugarð.

Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna sem breska ríkisútvarpið vísar til fjölgaði óbreyttum borgurum sem létust eða særðust í Úkraínu um 55 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×