Erlent

Skólum lokað eftir á­rásir og tíu hand­teknir vegna hótana

Samúel Karl Ólason skrifar
Fá vettvangi árásar þar sem fimmtán ára nemandi myrti húsvörð í skóla og særði tvo til viðbótar.
Fá vettvangi árásar þar sem fimmtán ára nemandi myrti húsvörð í skóla og særði tvo til viðbótar. EPA/MARCIN OBARA

Lögreglan í Póllandi hefur handtekið að minnsta kosti tíu ungmenni vegna hótana varðandi hnífaárásir í skólum þar í landi. Skólum og leikskólum hefur verið lokað í kjölfar tveggja árása í Póllandi á tveimur dögum.

Í gær (fimmtudag) myrti fimmtán ára strákur húsvörð í skóla nærri Wyszków. Hann var vopnaður hníf og særði tvo til viðbótar, þar á meðal skólastjórann, áður en hann var stöðvaður. Pilturinn var með myndavél á höfðinu sem talið er að hann hafi ætlað að nota til að streyma frá árásinni á netinu, samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins.

Degi áður, eða á miðvikudag, hafði nítján ára maður ráðist á hóp fólks í skóla í Ostrołęka. Hann særði níu áður en hann var handtekinn. Fyrr þann dag hafði lögreglan í Sierpc stöðvað táning sem grunaður er um að hafa ætlað sér að ráðast á fólk í skóla sínum.

Í kjölfarið er búið að handtaka tíu ungmenni til viðbótar og þar á meðal er sautján ára piltur sem talinn er bera ábyrgð á gervigreindarmyndbandi þar sem bárust hótanir um „blóðugan föstudag“. Þetta myndband er sagt hafa leitt til ólgu í Póllandi en yfirvöld segja að lokun skólanna tengist því ekki sérstaklega.

Lögregluþjónar voru í morgun sendir til um tíu þúsund skóla í Póllandi.

Hér að neðan má sjá stutta frétt TVP á ensku um stöðuna í Póllandi.

Í frétt Reuters segir að handtökunum og lögregluþjónunum sé ætlað að sefa ótta fólks vegna árásanna og hótana um þennan blóðuga föstudag. Mikil umræða um þær hefur átt sér stað á samfélagsmiðlum í Póllandi, sem er sagt hafa ýtt undir óttann.

Reuters segir að umræðan hafi að miklu leyti snúist um einhvers konar áskorun sem hafi verið í dreifingu á netinu, þar sem ungmenni eru hvött til árása. Lögreglan segir að engin ummerki um slíkt hafi fundist.

Yfirvöld hafa varað við upplýsingaóreiðu í tengslum við árásirnar og samsæriskenningum sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Ráðherra sagði í viðtali í morgun að eðlilega fyndi fólk fyrir kvíða vegna árásanna en það benti ekkert til einhvers landslægs ástands eða samráðs milli árásarmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×