Formúla 1

Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton hefur lengi barist fyrir því að fá kappaksturi í Afríku.
Lewis Hamilton hefur lengi barist fyrir því að fá kappaksturi í Afríku. Rudy Carezzevoli/Getty Images

Í síðustu viku byrjuðu orðrómar að fara á flug sem sögðu að Formúla 1 myndi fara aftur til Afríku. Lewis Hamilton hefur lengi reynt að gera allt í hans valdi til þess að fá kappakstur í Afríku.

Ef orðrómarnir reynast sannir þá er möguleiki á að Formúla 1 muni keppa í Rúanda og mun fá nafnið „Afríski kappaksturinn“. Síðasti kappaksturinn í Afríku var árið 1993 og því löngu kominn tími til þess að Formúla 1 keppi aftur þar.

Búið er að fylla keppnisdagatalið næstu ár en gert er ráð fyrir að keppt verði í afríska kappakstrinum árið 2030. Sky Sports spurði Lewis Hamilton út í orðrómana en hann gat ekki staðfest neitt við miðilinn.

„Ég er ekki með neinar fréttir fyrir þig. Ég sá fólk tala um þetta á netinu en ég hef alltaf sagt að við þurfum að hafa kappakstur í Afríku. Við keppum í öllum öðrum heimsálfum og það er engin ástæða fyrir því að við eigum ekki að keppa í Afríku.“

Hamilton hefur mikið rætt við Stefano Domenicali, forseta Formúlu 1, til þess að bæta við afrískum kappakstri og hefur hann sýnt vilja til þess að gera það. Domenicali hefur ferðast til Afríku nokkrum sinnum og rætt við aðila, líklegast til þess að halda Formúlu 1 keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×