Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Birgir Olgeirsson skrifar 8. október 2026 12:08 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hafa reynt að miðla málum í kjaradeilunni. Viðleitnin sé vel metin en staðan enn óbreytt. Vísir Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga.
Halla segir í samtali við fréttastofu að fulltrúar félaganna geri ráð fyrir að fara á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins milli klukkan tvö og þrjú í dag og segja upp samningunum. Spurð hvort stjórnvöld séu meðal þeirra sem reyni að finna lausn segir hún: „Ríkisstjórnin og sérstaklega forsætisráðherra hafa náttúrulega verið að reyna að hafa milligöngu og reyna að koma á svona lausnamiðaðri nálgun, við kunnum vel að meta það.“ Viðleitnin hafi þó ekki breytt stöðunni gagnvart Samtökum atvinnulífsins. „Staðan í samningum okkar við Samtök atvinnulífsins er ennþá óbreytt.“ Ekkert tilboð komið fram Halla segir að einhver símtöl og þreifingar hafi átt sér stað í morgun. Ekkert formlegt hafi hins vegar komið fram sem komi í veg fyrir fyrirhugaðar uppsagnir. Spurð hvað henni hafi verið boðið svarar hún: „Það er ekkert búið að bjóða neitt." Hún segir þó ýmsa reyna að leggja sitt af mörkum til að finna lausn og að enn sé tími til stefnu. „Við höfum nú sirka fjóra klukkutíma til stefnu þannig að við skulum spyrja að leikslokum. En þetta er staðan eins og hún er núna.“ Prenta út og undirrita Halla var í húsnæði fagfélaganna þegar fréttastofa ræddi við hana fyrir hádegi. Þar var unnið að undirbúningi uppsagnanna. „Ég er í húsnæði fagfélaganna með félögum okkar þar og þeir eru með ansi marga samninga þannig að þeir eru að prenta út og undirrita og við erum með svolítið færri samninga þannig að þetta er nokkurn veginn klárt hjá okkur þannig að það er staðan.“ Þótt fresturinn renni út klukkan fjögur er fyrirhugað að mæta fyrr til Samtaka atvinnulífsins. „Fresturinn rennur út klukkan fjögur en við gerum ráð fyrir að vera þarna milli tvö og þrjú.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Sjá meira