Fótbolti

Rekinn frá Tyrkjum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Montella kom Tyrkjum á HM í sumar en hefur nú verið látinn taka poka sinn eftir fjögur töp í fjórum leikjum í A-deild Þjóðadeildarinnar.
Montella kom Tyrkjum á HM í sumar en hefur nú verið látinn taka poka sinn eftir fjögur töp í fjórum leikjum í A-deild Þjóðadeildarinnar. Getty

Vincenzo Montella hefur verið sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Tyrklands eftir rúm þrjú ár í starfi. Tyrkjum gekk ekki vel í nýliðnum landsliðsglugga.

Montella stýrði síðasta leik sínum með liðið í heimalandinu Ítalíu þar sem Tyrkir töpuðu 3-1 fyrir Ítölum í Þjóðadeildinni á mánudagskvöldið var.

Um var að ræða fjórða tap Tyrkja í nýliðnum fjögurra leikja glugga. Tyrkir töpuðu 1-0 fyrir Frökkum og 4-1 fyrir Ítölum á heimavelli og í kjölfarið 3-0 fyrir Belgum og 3-1 fyrir Ítölum á útivelli.

Montella tók við Tyrkjum í september árið 2023 en hefur nú verið sagt upp störfum. Tyrkir voru í 42. sæti heimslistans þegar hann tók við en hann skilur við liðið í 27. sæti.

Montella stýrði Tyrkjum tvisvar gegn íslenska landsliðinu haustið 2024 í Þjóðadeildinni, þegar Ísland var undir stjórn Age Hareide. Tyrkir unnu báða leiki, 3-1 í Tyrklandi og 4-2 á Laugardalsvelli.

Um var að ræða fyrsta landsliðsstarf Montella en hann hafði áður stýrt Roma, Catania, Fiorentina, Sampdoria, AC Milan og Fiorentina í heimalandinu auk Sevilla á Spáni og Adana Demirspor í Tyrklandi.

Hann var áður lipur framherji sem leikmaður og skoraði 83 mörk í 192 deildarleikjum fyrir Roma. Hann varð ítalskur meistari með liðinu árið 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×