„Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. október 2026 21:04 Gylfi Þór Sigurðsson hefur glímt við rifbeinsbrot allan landsleikjagluggann. vísir/Anton Gylfi Þór Sigurðsson hefur lagt mikið á sig til að leika með íslenska landsliðinu í yfirstandandi landsleikjaglugga. Hann fær verðskuldaða hvíld næstu rúmu vikuna til að jafna sig á rifbeinsbroti.
Klippa: Gylfi eftir leikinn í Tallinn „Gott að halda hreinu en erfiður leikur og erfiðar aðstæður. Mér fannst aðeins meiri orka í þeim og mér fannst þeir aðeins yfir í návígjum og seinni boltum til að ná tökum á leiknum og koma sér í ágætis stöður í skyndisóknum. Bara fínasta stig þannig séð á nokkuð erfiðum útivelli miðað við aðstæður. Við erum í góðum málum í riðlinum og hlökkum til næsta glugga,“ segir Gylfi Þór um markalaust jafntefli kvöldsins við Eistland í Tallinn. Ísland hélt þar með hreinu í þriðja leiknum í röð og eftir standa átta stig vegna tveggja jafntefla við Eista og sigra á Lúxemborg og Búlgaríu. „Varnarleikurinn var mjög fínn í þessum glugga, eitt mark á okkur og haldið hreinu í síðustu þremur. Því miður skoruðum við ekki í dag og vantaði smá upp á gæði eða hreyfingu fram á við. Þetta var nokkuð erfiður leikur svo ég held að við vorum sæmilega sáttir heim.“ Gylfi Þór er rifbeinsbrotinn og hefur verið allan landsleikjagluggann. Það tók því á að koma sér í gegnum það og spila leikina. Aðspurður um stöðuna á sér eftir leikinn segir Gylfi: „Staðan er ágæt. Það eru komnar einhverjar fimm vikur síðan sirka en engin hvíld, margir leikir og æfingar. Ég held að ég fái núna smá frí til að jafna mig hjá Víkingunum. Þetta þarf bara að gróa svo ef ég verð ekki í neinum kontakt næstu sjö til tíu dagana vonandi jafnar þetta sig nokkuð fljótt svo ég nái síðasta leiknum eða síðustu tveimur á tímabilinu.“ Mikið á sig lagt til að spila fyrir landsliðið og krafturinn mikill í Gylfa í landsleikjunum. „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland. Þó að við höfum náð því markmiði sem við vildum í deildinni kom það aldrei til greina að missa af þessum glugga. Ég ræddi við Arnar fyrir valið og þá var ég töluvert verri, nýbúinn að brotna. Maður bara sprautar sig fyrir leiki og síðan dílar maður við það daginn eftir.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjá meira