„Það sem svíður mest“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. október 2026 20:49 Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hefur nú skorað þrjú mörk í þessari landsleikjatörn. vísir/Anton „Akkúrat núna er ég svekktur. Við eigum að gera betur. Við erum betra lið en við sýndum í dag. Við þurufm að horfa á þetta aftur og gera betur. Þetta er ekki nóg,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir markalaust jafntefli Íslands við Eistland ytra í Þjóðadeildinni í kvöld.
Ísland gerði þar með annað jafnteflið við Eistland í glugganum eftir að hafa gert 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í fyrsta leik fyrir einni og hálfri viku síðan. Ísland leiðir riðilinn með átta stig en Eistland er með sex stig í öðru sæti. Klippa: Orri svekktur eftir leik Aðspurður um hvað hafi helst vantað upp á í tíðindalitlum leik íslenska liðsins í kvöld segir Orri: „Mér fannst grimmdin koma meira í seinni hálfleik, hana vantaði í fyrri hálfleik. Við vorum lengi að koma okkur inn í leikinn og átta okkur á leikstöðunum. Þá verður þetta bara drulluerfitt,“ „Þeir bökkuðu aðeins meira í seinni hálfleik og gáfu okkur meiri tíma en það var sama vandamál og í fyrsta leiknum, við náum ekki að brjóta þá niður og finna lausnirnar sem við vildum. Það svona svíður mest,“ segir Orri Steinn. Ísland virtist komast yfir eftir hornspyrnu snemma í leiknum og vildu margir meina að boltinn hafi farið yfir línuna. Mark var hins vegar ekki dæmt. „Gylfi stóð við hornið og sagði hann fara inn og var byrjaður að fagna. Ég sá það ekki nægilega vel, mér fannst hann vera inni og kannski var þetta hendi. Dómarinn horfði ekki í þessa átt greinilega,“ Ísland er enn með sigur í riðlinum í eigin höndum þrátt fyrir vonbrigði kvöldsins. „Við erum á toppnum. Þetta er riðill en ekki bikar. Það eru tveir leikir eftir og við erum á toppnum. Þetta gæti verið verra. Yfir gluggann fengum við kannski ekki öll fjögur úrslitin sem við vildum en margt jákvætt og til að byggja ofan á,“ segir Orri Steinn sem naut sín vel í glugganum og skoraði þrjú mörk í fjórum leikjum. „Maður kemur inn í þessa glugga með gleði og ánægju að fá að spila fyrir Ísland. Við inni á vellinum myndum allir deyja fyrir Ísland og gerum allt fyrir landið okkar og þjóð. Fyrir mig er hver einasti leikur heiður. Að geta leitt strákana áfram eru forréttindi sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut. Framtíðin er björt og við höldum áfram að byggja ofan á þetta.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjá meira