Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Stefán Árni Pálsson skrifar 5. október 2026 16:33 Michael Carrick er stjóri United. Getty/Dan Mullan Manchester United gæti þurft að styrkja framherjastöðuna í janúarglugganum vegna áframhaldandi meiðsla Benjamin Sesko. Hann hefur skorað tvö mörk í sex leikjum á tímabilinu en glímt við meiðsli í sköflungi og missti meðal annars af leiknum gegn Fulham fyrir landsleikjahlé.
Áhyggjur eru af því að vandamálið geti orðið langvinnt og vilja margir meina að þeir rauðu þurfi meiri breidd fram á við. Joshua Zirkzee hefur jafnframt átt erfitt uppdráttar hjá United og félagið gæti því þurft að leita að öflugri varamanni í fremstu víglínu. Matheus Cunha og Bryan Mbeumo geta leyst framherjastöðuna en eru ekki hreinræktaðir framherjar. Miðillinn Sport Mole hefur tekið saman þrjá framherja sem United gæti sótt í janúar. Jean-Philippe Mateta Jean-Philippe Mateta í leik með Crystal Palace gegn Everton. VísirLewis Storey/Getty Images Frakkinn hjá Crystal Palace er einn þeirra sem United hefur fylgst með. Mateta, sem er 29 ára og 193 sentímetrar á hæð, er með samning til næsta sumars og gæti því verið fáanlegur á hóflegu verði í janúar. Hann hefur skorað 62 mörk og lagt upp 14 í 203 leikjum fyrir Palace. Í ensku úrvalsdeildinni hefur hann skorað 50 mörk í 163 leikjum. Igor Matanovic Igor Matanovi í leik með Freiburg í vetur. Vísir/Philipp von Ditfurth/getty Matanovic hefur vakið mikla athygli með frábærri byrjun sinni hjá Freiburg. Hinn 23 ára gamli Króati hefur skorað sex mörk og lagt upp tvö í sjö leikjum á tímabilinu. Hann skoraði 15 mörk í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Arsenal og Chelsea hafa einnig verið orðuð við Matanovic og talið er að verðmiðinn hafi hækkað verulega vegna frammistöðu hans. Hann var metinn á um 30 milljónir punda í sumar en nú gæti Freiburg viljað fá nær 50 milljónir. United hefur þegar kannað möguleikann á því að fá hann í janúar, þó að félagið gæti átt erfitt með að sannfæra Freiburg um að selja um miðjan vetur. Endrick Endrick hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Real Madrid.Vísir/ Alvaro Medranda/Getty Images Þriðji kosturinn er brasilíski framherjinn Endrick, sem er á mála hjá Real Madrid. Hann hefur fengið afar lítið að spila á þessu tímabili og hefur aðeins komið við sögu í fjórar mínútur. Hann missti af upphafi tímabilsins vegna meiðsla en hefur verið orðinn leikfær frá byrjun september. Endrick var orðaður við brottför í sumar en José Mourinho, þjálfari Real Madrid, kom í veg fyrir sölu. Þrátt fyrir það gæti lánssamningur komið til greina í janúar. Hann var á láni hjá Lyon síðari hluta síðasta tímabils og skoraði þar átta mörk í 21 leik.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hyrox stefnir á Ólympíuleikana Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira