Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar 5. október 2026 10:32 Í greininni „Veislunni er lokið“, sem birtist í Viðskiptablaðinu, fjallaði ég um veikleika efnahagslíkans ESB. Ódýr innflutt orka, opnir heimsmarkaðir og bandarísk öryggisvernd höfðu lengi stuðlað að velmegun íbúa álfunnar. Nú eru breyttir tímar og áform eru uppi um að verja meira fé til varnarmála, orkuöryggis og endurreisnar iðnaðar á sama tíma og mörg lönd innan ESB glíma við miklar skuldir og veikan hagvöxt. Greininni lauk með spurningu sem má orða þannig: Hvernig eiga ríkin að fjármagna uppbyggingu iðnaðar og innviða á meðan þau eru enn að greiða af miklum skuldum liðinna ára? Vaxtagreiðslur taka meira Síðustu vikur hafa sjónir manna einkum beinst að Frakklandi, þar sem ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hefur hækkað og vaxtamunurinn gagnvart þýskum ríkisskuldabréfum aukist verulega. Franska ríkið getur vissulega enn tekið lán en vandinn er hvað þau kosta og hvernig sá kostnaður þrengir svigrúm stjórnvalda með tímanum. Ávöxtunarkrafa tíu ára franskra ríkisskuldabréfa hefur nálgast 5%. Með öðrum orðum tryggir evran ríkjunum ekki sömu vaxtakjör. Hærri vextir leggjast ekki samstundis á allar skuldir ríkisins. Áhrifin koma fram þegar eldri lán falla á gjalddaga og ný eru tekin. Þess vegna getur vaxtabyrðin haldið áfram að vaxa jafnvel þótt vextir hækki ekki frekar. Fyrirhuguð útgáfa franska ríkisins á skuldabréfum til miðlungs og langs tíma nemur 340 milljörðum evra á næsta ári, að frádregnum uppkaupum. Sú fjárhæð felur bæði í sér endurfjármögnun og fjármögnun hallarekstrar. Þegar stærri hluti tekna fer í vaxtagreiðslur verður minna eftir til annarra verkefna. Þá þarf að hækka skatta, draga úr þjónustu eða fresta fjárfestingum. Sé fjárfesting skorin niður getur það aftur veikt hagvöxt og tekjuöflun síðar meir. Skuldavandinn getur þannig viðhaldið sjálfum sér. Þetta gerist á sama tíma og flest ESB-ríki standa andspænis mikilli fjárfestingaþörf þar sem horfa þarf til áratuga fram í tímann. Raforkukerfi, orkuver, varnarbúnaður og iðnaðarframleiðsla verða ekki byggð upp með ákvörðunum sem eru endurskoðaðar í hverri fjárlagagerð. Verkefnin krefjast þess að stjórnvöld geti staðið við langtímaskuldbindingar. Hver ræður sameiginlegum reikningi? Í grein sinni „France Can Borrow. That Is Not the Problem“ bendir Domagoj Juričić á hvernig þessi staða getur ýtt undir sameiginlega fjármögnun innan ESB. Þegar fjárhagur einstakra ríkja þrengist verður freistandi að færa fjármögnun stórra verkefna yfir á sameiginlegan vettvang. Skref í þá átt hafa þegar verið tekin. SAFE er lánafyrirgreiðsla ESB til aðildarríkja vegna sameiginlegra innkaupa á varnarbúnaði. Framkvæmdastjórn ESB tekur lán á fjármálamörkuðum og endurlánar ríkjunum féð. Fyrirgreiðslan getur numið allt að 150 milljörðum evra en ríkin bera sjálf ábyrgð á endurgreiðslu lánanna. Ef afborganir og vextir væru þess í stað greidd af sameiginlegum tekjum sambandsins væri stigið frekara skref í átt að sameiginlegri fjárhagslegri ábyrgð. En sameiginleg ábyrgð kallar líka á sameiginlegar ákvarðanir um ráðstöfun fjárins. Hvaða verkefni fá forgang? Hvar verður framleiðslan? Hvaða fyrirtæki fá samningana? Ríki sem taka þátt í að greiða reikninginn vilja hafa áhrif á ákvarðanirnar. Þannig getur fjármögnunarvandi orðið aflvaki aukinnar miðstýringar. Stjórnvöld fá meira fé til ráðstöfunar en þurfa á móti að semja við fleiri um hvernig það verður notað. Sameiginleg fjármögnun getur aukið getu ríkjanna til framkvæmda og um leið fært ákvarðanir frá einstökum ríkjum til stofnana sambandsins. Þessi þróun er ekki fyrirfram ákveðin. Hún sýnir þó hvers vegna íslensk umræða um ESB þarf að ná lengra en til þeirra reglna og stofnana sem nú eru til staðar. Einnig þarf að skoða hvaða breytingar skuldavandi stórra aðildarríkja og nýjar útgjaldaþarfir geta knúið fram. Höfundur er hagfræðingur með diplomu í opinberri stjórnsýslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun