Skoðun

Hvað ein­kennir góðan vinnu­stað?

Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar

Að mínu mati eru það fyrst og fremst samskipti og fólkið á vinnustaðnum sem skapa góðan vinnustað. Mannauðurinn er ein mikilvægasta auðlind vinnustaðarins og því skiptir máli að hlúa að honum. Góð vinnustaðamenning, traust, starfsánægja og góð samskipti verða ekki til af sjálfu sér heldur byggjast upp í daglegum samskiptum starfsfólks og stjórnenda.

Mikilvægt er að starfsfólk viti til hvers er ætlast af því, hafi skýr verkefni og ábyrgð og fái þær upplýsingar sem það þarf til að sinna starfi sínu. Þegar fólk upplifir traust og virðingu, finnur að á það er hlustað og getur komið skoðunum sínum og ábendingum á framfæri getur það haft jákvæð áhrif á vellíðan þess í starfi. Aðgengilegir stjórnendur, góð samskipti og stuðningur geta þannig haft mikil áhrif á upplifun starfsfólks af vinnustaðnum.

Vellíðan starfsfólks snýst ekki eingöngu um líkamlega heilsu heldur einnig um andlega líðan og það vinnuumhverfi sem fólk býr við. Þegar starfsfólk upplifir stuðning, skýr samskipti og virðingu á vinnustað getur það aukið starfsánægju og skapað jákvætt vinnuumhverfi. Rannsóknir hafa sýnt að starfsánægja tengist meiri skuldbindingu og virkni í starfi, sem getur stuðlað að betri frammistöðu og árangri og þannig styrkt samkeppnishæfni skipulagsheilda til lengri tíma.

Mikilvægi þessara þátta endurspeglast einnig í MS-rannsókn minni (2026), þar sem ég skoðaði tengsl sorgartengdra einkenna, upplifaðs stuðnings á vinnustað og starfsgetu hjá einstaklingum sem höfðu misst náinn ástvin eða upplifað önnur persónuleg áföll. Alls tóku 342 einstaklingar þátt í rannsókninni. Niðurstöðurnar sýndu sterk neikvæð tengsl milli sorgartengdra einkenna og starfsgetu, þar sem meiri sorgareinkenni tengdust lakari starfsgetu. Jafnframt komu fram jákvæð tengsl milli upplifaðs stuðnings á vinnustað og starfsgetu. Einstaklingar sem upplifðu meiri stuðning greindu frá betri starfsgetu. Niðurstöðurnar benda því til þess að vinnuumhverfið skipti verulegu máli þegar einstaklingar snúa aftur til vinnu eftir missi eða önnur áföll.

Vinnuumhverfi og félagslegar aðstæður gegna mikilvægu hlutverki í því hvernig einstaklingar takast á við endurkomu til vinnu eftir krefjandi lífsatburði. Því þarf að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir stuðning og skilning þegar á þarf að halda. Vinnustaðurinn getur þannig skipt sköpum fyrir farsæla endurkomu til vinnu eða, ef stuðning skortir, torveldað endurkomuna.

Að hlúa að mannauðinum og velferð hans er því mikilvægur þáttur í árangri fyrirtækja og stofnana til lengri tíma. Heilbrigt vinnuumhverfi, þar sem traust, góð samskipti og stuðningur eru í forgrunni, getur stuðlað að aukinni vellíðan starfsfólks, farsælli endurkomu til vinnu eftir áföll og sjálfbærari þátttöku fólks í atvinnulífinu.

Ingunn Eir Andrésdóttir, MSc




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×