„Maður uppsker eins og maður sáir“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 2. október 2026 22:07 Lögðu allt í leik kvöldsins en voru búnar að koma sér í þá stöðu að vera ekki með örlögin í sínum höndum Vísir/Anton Brink Þrátt fyrir 2-1 sigur gegn Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna dugði niðurstaðan ekki til og Valur er fallið niður um deild. Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, segir fallið afar sárt. „
Tilfinningarnar eru ekki góðar. Sigur hjá okkur í dag og bara fínn leikur en við vorum náttúrulega búnar að missa þetta úr okkar höndum. Rosalega súr tilfinning eftir svona niðurstöðu.“ Fyrir síðustu leiki tímabilsins hafði ekkert verið rætt um hvað tæki við ef niðurstaðan yrði fall. Öll athygli fór þess í að klára verkefnin sem framundan voru. „Við höfum bara verið að einbeita okkur að þessum leikjum. Í fullri hreinskilni þá hefur maður varla getað hugsað um neitt annað en þessa leiki, þannig að nei, það hefur ekkert slíkt verið rætt.“ Fallið er sögulegt fyrir Val og aðspurð hvort niðurstaðan væri högg fyrir kvennadeild félagsins sagði Málfríður svo vera. „Ég get svo sem bara talað fyrir sjálfa mig en þetta er svakalega mikið högg. Ég hef alltaf trúað því bæði þegar manni gengur vel og illa, að maður uppsker eins og maður sáir. Það er auðvitað ofboðslega sæt tilfinning þegar maður er búinn að leggja mikið inn og nær árangri. Aftur á móti er það rosalega súr tilfinning þegar manni líður eins og það hafi ekki allt verið skilið eftir og þá er þetta niðurstaðan.“ Mikil umræða hefur verið í kringum Val síðustu tvö tímabil um metnað félagsins. Ekki síst eftir að nokkrir reynslumiklir leikmenn yfirgáfu félagið eftir síðasta tímabil. Málfríður segir það hafa verið erfitt fyrir liðið að missa svo mikla reynslu. „Það var mjög erfitt eftir síðasta tímabil að missa marga mjög reynslumikla leikmenn sem voru búnir að bera þetta lið uppi í mörg ár.“ „Ég er ekki mikið að pæla í því hvað er sagt um klúbbinn. Ég hef alltaf borið treyjuna stolt.
Valur Besta deild kvenna Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira