Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. október 2026 09:01 Þorleifur á Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Þorleifur Þorleifsson er einn þeirra.
Þorleifur er 47 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Hann hefur mest farið 62 hringi og á því Íslandsmetið en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég byrjaði að hlaupa í janúar 2009 þegar ég ákvað að skrá mig í Laugaveginn. Fram til 2020 hélt ég mig við Laugaveginn og önnur styttri hlaup, en þá hljóp 100 kílómetra í Hengill Ultra ásamt mínu fyrsta Bakgarðshlaupi. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Ég hafði fylgst með bakgarðinum í nokkur ár áður en keppnin kom loksins til Íslands. Þegar Náttúruhlaup auglýstu svo fyrsta Bakgarðshlaupið hér á landi 2020 var ég ekki lengi að hugsa mig um og skráði mig strax. Bakgarðshlaupararnir hlaupa svo langt að það er erfitt að borða sjálfur. Síðan þá hef ég tekið þátt í fimmtán bakgarðskeppnum, þar á meðal farið tvisvar á heimsmeistaramót einstaklinga og þetta verður í þriðja sinn sem ég tek þátt í heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Mér finnst eiginlega skemmtilegast að spjalla við þau sem ég þekki minna og nýta tækifærið til að kynnast þeim betur. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Stærsti hluti næringarinnar hjá mér kemur úr Tailwind kolvetnadrykk og ég borða annars frekar lítið í sjálfri keppninni. Ég fæ mér eina og eina kexköku, smá ávexti, nammi og annað smáræði til að brjóta þetta upp. Svo koma punktar inn á milli þar sem ég verð verulega svangur og þá finnst mér núðlur bestar. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Cocoa Puffs-ið hans Gumma og ef ég horfi til baka á keppnina fyrir tveimur árum, þá voru það klárlega frostpinnarnir hjá Andra. Klassíski tútú-pilsahringurinn. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Þegar ég er ekki að hlaupa, þá er ég að hugsa um að hlaupa. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Markmiðið mitt er alltaf það sama, að hlaupa þangað til ég get ekki eða má ekki hlaupa lengra. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Ég man ekki eftir að hafa lent í neinu vandræðalegu. Ég reyni að vera einbeittur og láta fólk í kringum mig ekki hafa áhrif á mig. Ef ég geri eitthvað sem gæti þótt vandræðalegt þá velti ég mér ekki upp úr því. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Landsliðsbrautin í Elliðaárdal er í uppáhaldi hjá mér. Hún fer í gegnum skóginn í Hólmanum sem er svæði þar sem ég hleyp mikið á æfingum. Svo er hún líka mjög áhorfendavæn. Það er mjög auðvelt fyrir áhorfendur að horfa á keppendur leggja af stað, rölta svo aðeins inn á brautina og hvetja keppendur áfram. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Ég held að flestir í liðinu muni bæta sig. Þórdís, Guðjón og Gummi hafa öll verið að bæta sig mikið á síðasta ári og endað í efstu tveimur sætunum í sínum hlaupum. Það verður virkilega spennandi að fylgjast með þeim núna. Stund milli stríða. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Ég myndi segja að reynslan og teymisvinnan með Önnu konunni minni sé minn helsti styrkleiki. Eftir hverja keppni förum við yfir hvernig gekk og byrjum að undirbúa næsta hlaup. Þegar í keppnina er komið á ég auðvelt með að halda einbeitingu og veit nákvæmlega hvað ég vil og þarf. Helsti veikleiki minn er hversu stirður ég er í upphafi hvers hrings. Ég þarf alltaf þessa fyrstu 200 metra til að hrista úr mér stirðleikann og koma mér almennilega af stað aftur. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Áhorfendum gæti fundist margt skrýtið sem er algjörlega eðlilegt í mínum huga. Mér finnst til dæmis mjög eðlilegt að tala upphátt við sjálfan mig, peppa mig áfram og minna mig á hversu flottur og geggjaður ég er. Annað sem gæti verið skrítið var fyrir tveimur árum þegar mér leið mjög illa á einum hring og var alveg að brotna niður andlega. Ég bað þá Marlenu um að hlaupa með mér og hjálpa mér í gegnum hringinn. Hún endaði á að leiða mig síðasta spölinn sem hjálpaði mér gríðarlega. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Mari á klárlega vinninginn þarna. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Ég myndi eflaust nefna nýtt lag eftir hvern hring, því líðan breytist hratt milli hringja. Ef ég þarf að velja eitt lag núna þá er það Survival með Muse. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Ég er giftur þriggja barna faðir. Ég er uppalinn í Selásnum og bý þar enn. Ef ég ætti að lýsa mér í nokkrum orðum myndi ég segja að ég væri hógvær, áreiðanlegur og jákvæður að eðlisfari. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Því er auðsvarað borða góðan, oftast óhollan mat, fara í heita pottinn og hvíla. Svo tekur við það allra leiðinlegasta en það er að ganga frá öllu dótinu eftir hlaup. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Ég hugsa að Tommi sé líklegastur til að byrja að syngja. Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Einn hring enn
Bakgarðshlaup Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir Get unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni HM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Sjá meira