Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. október 2026 10:54 Olivier Martinez og Halle Berry voru gift frá 2013 til 2016. Þau áttu í áralöngum skilnaðardeilum og nú hefur Martinez fengið nálgunarbann á hendur Berry. Getty Dómari hefur samþykkt tímabundið nálgunarbann sem franski leikarinn Olivier Martinez fór fram á gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Halle Berry. Martinez óskaði eftir nálgunarbanninu í kjölfar þess að hafa sakað Berry um að kyrkja tólf ára son þeirra og beita þá feðga áralöngu ofbeldi.
Fjölmiðlar vestanhafs fjölluðu í gær um að Martinez hefði óskað eftir nálgunarbanni á hendur Berry og að hún yrði svipt forræði yfir tólf ára syni þeirra, Maceo, sökum þess að hún hefði tekið soninn kyrkingartaki laugardaginn 26. september síðastliðinn. Dægurmálamiðillinn People greindi svo frá því í nótt að dómari í Los Angeles-sýslu hefði fallist á tímabundið nálgunarbann á Berry. Dómarinn féllst hins vegar ekki á að fylgst yrði með áfengisneyslu leikkonunnar sökum „skorts á upplýsingum“ í málinu. Dómarinn hefði fyrirskipað breytta umgengni en Berry hefði þó áfram forsjá yfir Maceo að hluta til að viðhalda samskiptum þeirra á milli. Umgengni Berry um Maceo myndi takmarkast við mánudaga, þriðjudaga, laugardaga og sunnudaga, frá 10 að morgni til átta um kvöld. Tímabundna nálgunarbannið mun gilda þar til síðar í mánuði þar sem dómari mun ákvarða hvort nálgunarbannið verði gert varanlegt. Segir Berry hafa kyrkt soninn Martinez hélt því fram í stefnu sinni að Berry hefði „tekið um háls Maceo og kyrkt hann meðan hún hrópaði: „Hver ræður núna? Hver ræður?“ (e. „Who's dominant now? Who's dominant?) í atvikinu sem átti sér stað á heimili hennar 26. september. Að sögn Martinz hefði unnusti Berry, söngvarinn Van Hunt, hefði verið á staðnum og varið soninn. Hann hélt því jafnframt fram að Berry hefði áður „beitt ofbeldi á síðustu árum,“ þar á meðal „líkamlegu ofbeldi“ í garð sonarins og „andlegu ofbeldi“ í garð hans. Lögmaður Martinez, Patrick Baghdaserians, sagði áhyggjur skjólstæðings síns beinast að „heilsu, velferð og öryggi barnsins“ og því hefði hann óskað eftir nálgunarbanninu. Berry er Hollywood-stjarna og Óskarsverðlaunahafi.Getty Lögmaður Berry, Marina Beck, segir stefnu fyrrverandi eiginmanns hennar „algjörlega tilhæfulausa og vísvitandi villandi“. Lögmaðurinn sagði Berry vana „smánarlegri hegðun“ sem þessari og það myndi ekki koma í veg fyrir að hún myndi berjast fyrir hagsmunum sonarins og veita honum þá ást og stuðning sem hann þarf á að halda. Þrjú ár eru síðan Berry og Martinez skildu formlega eftir að hafa átt í átta ára löngum skilnaðardeilum en þau skildu að borði og sæng árið 2016 eftir þriggja ára hjónaband. Berry var þá gert að greiða Martinez átta þúsund Bandaríkjadali mánaðarlega í meðlag auk 4,3 prósenta af öllu tekjum yfir tveimur milljónum í aukalegan stuðning.
Bandaríkin Fjölskyldumál Hollywood Tengdar fréttir Halle Berry einhleyp á ný: „Ég gef ástina uppá bátinn“ Hætt með Alex Da Kid eftir nokkurra mánaða samband. 14. desember 2017 21:30 Halle Berry eignaðist son Halle Berry og eiginmaður hennar, franski leikarinn Olivier Martinez, eignuðust son á laugardag. 7. október 2013 12:00 Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira
Halle Berry einhleyp á ný: „Ég gef ástina uppá bátinn“ Hætt með Alex Da Kid eftir nokkurra mánaða samband. 14. desember 2017 21:30
Halle Berry eignaðist son Halle Berry og eiginmaður hennar, franski leikarinn Olivier Martinez, eignuðust son á laugardag. 7. október 2013 12:00