Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Agnar Már Másson skrifar 1. október 2026 19:30 Ingó Veðurguð í Héraðsdómi Reykjavíkur, þegar aðalmeðferð í öðru meiðyrðamáli hans fór fram. Vísir/Vilhelm Landsréttur taldi það ekki skipta máli þótt ummæli Pálína Helga Þórarinsdóttir um Ingó veðurguð hafi verið sett fram í kaldhæðni enda væri ekki hægt að túlka þau á annan veg en að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk.
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Ummælin sem um ræðir lét konan, hin 51 árs gamla Pálína Helga, falla í athugasemd á Facebook, sem var svar við ummælum manns sem sagði: „Áfram gakk Ingó minn.“ „[Þ]á í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ spurði Pálína Helga. Pálína var í fyrstu sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur á þeim grundvelli að ummælin rúmuðust innan tjáningarfrelsis hennar og hefðu ekki farið í bága við ærumeiðingaákvæði almennra hegningarlaga. Dómurinn mat ummælin hafa falið í sér gildisdóm frekar en að um staðhæfingu um staðreynd væri að ræða. Dómur Landsréttar hefur nú verið birtur en hann dæmdi Ingó í vil. Landsréttur mat svo að – þrátt fyrir að líta mætti svo á að ummælin hefðu verið hluti af mikilvægri samfélagsumræðu sem hefði staðið yfir á þessum tíma – væri ekki hægt að skilja þau á annan veg en að með þeim væri því haldið fram að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Þau hefðu því falið í sér staðhæfingu en ekki gildidóm af hálfu Pálínu, og hún hefði ekki reynt að bera sönnur á þær staðhæfingar. „Þrátt fyrir að [Ingó] væri þjóðþekktur einstaklingur þyrfti hann ekki að þola að vera sakaður opinberlega um alvarlegt refsivert brot án þess að réttmætt tilefni væri til að setja fram slíkar staðhæfingar,“ segir í reifun dómsins. „Breytti engu þar um þótt ummælin hefðu fallið í umræðu um mikilvægt þjóðfélagsmálefni.“ Þá hafi engu skipt að orðin hafi borið merki um „ákveðna kaldhæðni“, eins og Pálína vildi meina. Því féllst Landsréttur á að í hinum umdeildu ummælum hefði falist aðdróttun í garð Ingós um alvarlega refsiverða háttsemi. Ingólfur hefur áður unnið meiðyrðamál af svipuðum toga þegar hann lagði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson í Landsrétti, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafði sýknað Sindra Þór. Að mati Landsréttar mátti Sindri Þór ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Ummæli Sindra Þórs voru dæmd dauð og ómerk. Sindri Þór var dæmdur til að greiða Ingólfi 900 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Þá var hann dæmdur til að greiða Ingólfi málskostnað. Þá var þriðja meiðyrðamáli Ingólfs lokið með dómsátt og afsökunarbeiðni Silju Bjarkar Björnsdóttur.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Mál Ingólfs Þórarinssonar Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira