Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar 30. september 2026 15:32 Rúmir fjórir mánuðir eru liðnir frá sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Nýkjörnir fulltrúar hafa haft í nógu að snúast við að setja sig inn í málin. Á haustin hittist sveitarstjórnarfólk á þingum og ráðstefnum til að kynnast hvort öðru, þétta raðirnar og móta sameiginlega stefnu fyrir kjörtímabilið. Fjármálin snerta öll málefnasvið sveitarfélaganna og eru að mínu mati mikilvægasta viðfangsefni sveitarstjórnarfólks hverju sinni. Ef grunnurinn er ekki í lagi skiptir annað litlu máli. Fjárhagsáætlunarvinna er hafin víðast hvar, og þar er stefnan mörkuð fyrir næstu ár. Stærsti óvissuþátturinn í þeirri vinnu er hvernig efnahagsmálin, vextir og verðbólga munu þróast næstu árin. Umræðan um vexti og verðbólgu hefur ekki farið framhjá neinum, enda hafa vextir og verðbólga gríðarleg áhrif á heimilisbókhaldið, ríkisfjármálin og ekki síst fjármál sveitarfélaga. Heildarskuldir hins opinbera voru um 4.361 milljarður króna í lok árs 2025. Skuldir ríkissjóðs námu um 3.708 milljörðum króna og skuldir sveitarfélaga um 658 milljörðum. Vaxtagjöld námu rúmlega 230 milljörðum króna, eða 10,8% af hreinum útgjöldum hins opinbera, og hækkuðu um 8,5% milli ára. Stór hluti lána sveitarfélaga er verðtryggður, svo verðbólguskeiðið sem nú stendur yfir bitnar beint á fjárhag þeirra. Á nýliðnu landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga lýstu sveitarfélögin yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027 og leggja þannig sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta. Það var gert með þeirri kröfu að ríkið taki þátt með sambærilegum hætti. Ávinningurinn af lægri verðbólgu er margfalt meiri fyrir sveitarfélögin en tekjurnar af hærri gjaldskrám. Ríkið ætlar hins vegar að hækka krónutölugjöld sín um 5,2% og á hækkunin að skila um 6,5 milljörðum króna. Yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar er að skila hallalausum fjárlögum. Ef ríkið héldi sig við 2,5% hækkun myndi það samt skila rúmum 3 milljörðum og fjárlögin yrðu áfram hallalaus með um 1,3 milljarða króna afgangi. Lækkun verðbólgu og vaxta mun bæta rekstur ríkis og sveitarfélaga meira en nokkur skatta- eða gjaldahækkun. Ályktun landsþingsins var samþykkt þvert á flokka og sveitarfélögin eru tilbúin að leggja sitt af mörkum. Nú vantar aðeins að ríkisstjórnin svari kallinu. Þannig, ríkisstjórn, boltinn er hjá ykkur. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Rúmir fjórir mánuðir eru liðnir frá sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Nýkjörnir fulltrúar hafa haft í nógu að snúast við að setja sig inn í málin. Á haustin hittist sveitarstjórnarfólk á þingum og ráðstefnum til að kynnast hvort öðru, þétta raðirnar og móta sameiginlega stefnu fyrir kjörtímabilið. Fjármálin snerta öll málefnasvið sveitarfélaganna og eru að mínu mati mikilvægasta viðfangsefni sveitarstjórnarfólks hverju sinni. Ef grunnurinn er ekki í lagi skiptir annað litlu máli. Fjárhagsáætlunarvinna er hafin víðast hvar, og þar er stefnan mörkuð fyrir næstu ár. Stærsti óvissuþátturinn í þeirri vinnu er hvernig efnahagsmálin, vextir og verðbólga munu þróast næstu árin. Umræðan um vexti og verðbólgu hefur ekki farið framhjá neinum, enda hafa vextir og verðbólga gríðarleg áhrif á heimilisbókhaldið, ríkisfjármálin og ekki síst fjármál sveitarfélaga. Heildarskuldir hins opinbera voru um 4.361 milljarður króna í lok árs 2025. Skuldir ríkissjóðs námu um 3.708 milljörðum króna og skuldir sveitarfélaga um 658 milljörðum. Vaxtagjöld námu rúmlega 230 milljörðum króna, eða 10,8% af hreinum útgjöldum hins opinbera, og hækkuðu um 8,5% milli ára. Stór hluti lána sveitarfélaga er verðtryggður, svo verðbólguskeiðið sem nú stendur yfir bitnar beint á fjárhag þeirra. Á nýliðnu landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga lýstu sveitarfélögin yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027 og leggja þannig sitt af mörkum til lækkunar verðbólgu og vaxta. Það var gert með þeirri kröfu að ríkið taki þátt með sambærilegum hætti. Ávinningurinn af lægri verðbólgu er margfalt meiri fyrir sveitarfélögin en tekjurnar af hærri gjaldskrám. Ríkið ætlar hins vegar að hækka krónutölugjöld sín um 5,2% og á hækkunin að skila um 6,5 milljörðum króna. Yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar er að skila hallalausum fjárlögum. Ef ríkið héldi sig við 2,5% hækkun myndi það samt skila rúmum 3 milljörðum og fjárlögin yrðu áfram hallalaus með um 1,3 milljarða króna afgangi. Lækkun verðbólgu og vaxta mun bæta rekstur ríkis og sveitarfélaga meira en nokkur skatta- eða gjaldahækkun. Ályktun landsþingsins var samþykkt þvert á flokka og sveitarfélögin eru tilbúin að leggja sitt af mörkum. Nú vantar aðeins að ríkisstjórnin svari kallinu. Þannig, ríkisstjórn, boltinn er hjá ykkur. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Framsóknar í Árborg.
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun