Körfubolti

Tröll­vaxinn Tryggvi hóf tíma­bilið af krafti

Sindri Sverrisson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason er vissulega mjög hávaxinn en var gerður enn stærri í gervigreindarmyndbandi Bilbao Basket.
Tryggvi Snær Hlinason er vissulega mjög hávaxinn en var gerður enn stærri í gervigreindarmyndbandi Bilbao Basket. Skjáskot/bilbabasket

Tryggvi Snær Hlinason tók sig vel út í gervigreindarmyndbandi spænska félagsins Bilbao Basket sem er greinilega stolt af íslenska miðherjanum sínum.

Tryggvi var í aðalhlutverki hjá Evrópubikarmeisturum Bilbao Basket um helgina þegar þeir unnu 107-92 sigur gegn Manresa í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Eftir leikinn birti félagið myndband í anda King Kong á samfélagsmiðlum sínum þar sem búið var að gera Tryggva enn stærri og sterkari en hann er. „Tryggvi Hlinason að mæta í Liga Endesa 26/27.“

Tryggvi nýtti hæð sína vel um helgina og tók flest fráköst allra á vellinum eða átta talsins, í sigrinum gegn Manresa. Hann skoraði auk þess 12 stig og nýtti skotin sín afar vel.

Bilbao á svo næst leik við Basquet Coruna á sunnudag áður en liðið hefur keppni í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×