Körfubolti

Tinda­stóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennu­trylli

Aron Guðmundsson skrifar
Sigtryggur Arnar var stigahæstur í liði Tindastóls í dag
Sigtryggur Arnar var stigahæstur í liði Tindastóls í dag vísir / jón gautur

Tindastóll er með fullt hús stiga í ENBL deildinni í körfubolta eftir sigur gegn Jonava frá Litáen á útivelli í miklum spennutrylli. Lokatölur 77-71, sex stiga sigur Tindastóls

Stólarnir byrjuðu leikinn mun betur og leiddu mest með tíu stigum í fyrsta leikhluta. Þegar líða tók á annan leikhluta fóru heimamenn í liði Jovana að vinna sig meira inn í leikinn og munaði aðeins einu stigi á liðunum, 37-36 Jovana í vil í hálfleik. 

Seinni hálfleikurinn var æsispennandi og lítið sem skildi liðin að í þriðja leikhluta og framan af í þeim fjórða og síðasta. 

Það var hins vegar í stöðunni 65-63, þegar Tindastóll var tveimur stigum undir sem Stólarnir hrukku í gír. Þeir skoruðu næstu níu stig leiksins og voru sjö stigum yfir 72-65 þegar rétt undir þrjár mínútur eftir lifðu leiks.

Forystuna létu lærisveinar Arnars Guðjónssonar aldrei af hendi og sigldu að lokum heim gífurlega sterkum sex stiga sigri, 77-71.

Tindastóll er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir ENBL deildarinnar eftir sigra gegn Liepaja og nú Jonava. Framundan er síðasti útileikur liðsins í þessari þriggja leikja hrinu sem nú stendur yfir hjá Tindastól.

Sigtryggur Arnar Björnsson fór mikinn í liði Tindastóls í dag og var stigahæstur með sextán stig. Þá gaf hann tvær stoðsendingar og reif niður þrjú fráköst. Leikstjórnandinn Dee Bost, sem gekk í raðir liðsins í sumar, setti þá niður níu stig, gaf sjö stoðsendingar og reif niður sjö fráköst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×