„Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Andri Broddason skrifar 25. september 2026 09:00 Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir miklar breytingar á landsliðshópnum. Sigurjón/Vísir Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í góðu tækifæri til að komast á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Brasilíu á næsta ári. Liðið mætir Króatíu í undanúrslitum undankeppninnar um farmiða á heimsmeistaramótið og verða spilaðir leikir heima og heiman.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Íslands, er bjartsýnn fyrir leikinn og segir að íslenska liðið ætti að vinna það króatíska. Liðið þarf samt að mæta af krafti til leiks og hefur hann þurft að gera breytingar á landsliðshópnum frá síðasta verkefni. „Eins og staðan er í dag þá lítur þetta vel út og við erum klár í þetta. Það eiga reyndar tvær helgar eftir að líða þannig að maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar,“ sagði Þorsteinn og var smeykur við að missa fleiri leikmenn í meiðsli. Klippa: Þorsteinn Halldórsson tilkynnir hópinn gegn Króatíu Fyrir stuttu lentu Linda Líf Boama og Sandra María Jessen báðar í meiðslum og verða líklegast frá út árið. Tveir nýliðar koma í liðið í staðinn en það eru Líf Joosdóttir Van Bemmel, leikmaður Breiðabliks, og Emelía Óskarsdóttir, leikmaður Danmerkurmeistara HB Köge. „Þær eru hluti af þessum hóp af því að ég treysti þeim til að spila. Þær hafa hæfileikana og getuna til þess að vera í hópnum en svo kemur í ljós hvernig maður raðar þessu upp,“ sagði Þorsteinn og treystir bæði Emelíu og Líf til þess að spila gegn Króatíu. Íslenskir leikmenn komnir á hæsta stig Nú fyrr í vikunni voru fimm íslenskir leikmenn að spila í Meistaradeild Evrópu sama kvöldið sem verður að teljast gott skref fyrir íslenska knattspyrnu. Þessi reynsla gæti hjálpað landsliðinu þegar það spilar í stórum leikjum. „Það var gaman að sjá svona margar spila í Meistaradeildinni og standa sig vel. Það er alltaf gott fyrir okkur að eiga leikmenn sem spila á hæsta getustigi og það mun alltaf hjálpa landsliðinu að eiga leikmenn sem spila í Meistaradeildinni og mjög sterkum deildum í Evrópu.“ Vill fá góða mætingu á Laugardalsvöllinn Seinni leikurinn gegn Króatíu fer fram 13. október á Laugardalsvelli þar sem Ísland getur tryggt sig í úrslitaviðureign í umspili heimsmeistaramótsins. Það er mikilvægt fyrir íslenska liðið að fá stuðning þar til að hjálpa liðinu að uppfylla langþráðan draum að komast á heimsmeistaramótið. „Við vonumst til að fólk komi og styðji okkur við að klára Króatíu. Auðvitað langar mann til að sjá að völlurinn verði fullur og að það verði fullt af fólki. Það verður að komast í ljós hvort það verði en ég vonast til þess.“ Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Landslið kvenna í fótbolta Fótbolti HM 2027 í Brasilíu Tengdar fréttir Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Linda Líf Boama, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Charlton á Englandi, verður frá keppni næstu mánuði eftir að hafa meiðst á hné með liði sínu aðeins nokkrum dögum eftir að hún gekk í raðir Charlton. 12. september 2026 11:31 Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Íslenska landsliðið í fótbolta verður án Söndru Maríu Jessen þegar það mætir Króatíu í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu í næsta mánuði, eftir að hún meiddist alvarlega. 20. september 2026 23:00 Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Handbolti Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Sjá meira
Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Linda Líf Boama, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Charlton á Englandi, verður frá keppni næstu mánuði eftir að hafa meiðst á hné með liði sínu aðeins nokkrum dögum eftir að hún gekk í raðir Charlton. 12. september 2026 11:31
Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Íslenska landsliðið í fótbolta verður án Söndru Maríu Jessen þegar það mætir Króatíu í fyrri umferð umspilsins um sæti á HM í Brasilíu í næsta mánuði, eftir að hún meiddist alvarlega. 20. september 2026 23:00