„Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2026 18:30 Kristín Dís Árnadóttir sagði hreinlega erfitt að átta sig á hvað gerðist á Kópavogsvelli í kvöld. vísir/Guðmundur „Ég veit ekki við hverju við bjuggumst. Á þessu stigi keppninnar eru öll liðin hörkugóð og við fengum að finna fyrir því í dag,“ sagði Kristín Dís Árnadóttir eftir áfallið sem Breiðablik varð fyrir með 6-2 tapi á heimavelli gegn pólsku meisturunum í Czarni í dag.
Blikakonur eru því svo gott sem úr leik í Evrópubikarnum en Czarni á leiðinni í 16-liða úrslitin. Síðasta vetur komst Breiðablik í 8-liða úrslit keppninnar en frammistaðan í dag var langt undir væntingum. „Við vorum bara mjög slappar í fyrri hálfleik. Gáfum þeim tvö ef ekki þrjú mörk. Náðum aldrei að klukka þær. Vorum „soft“ og náðum ekki að spila okkar leik,“ sagði Kristín en staðan að loknum fyrri hálfleik var 4-1. „Ég veit ekki hvað hefur gerst. Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta á einhverjum fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik,“ sagði Kristín en tvö marka gestanna í fyrri hálfleik voru með skalla eftir aukaspyrnur utan af velli. „Það er vissulega mjög svekkjandi að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum, sérstaklega tvö alveg eins mörk. Við erum bara ekki að klára mennina nógu vel og erum illa staðsettar. Það er mjög svekkjandi. Mér fannst við ná að núllstilla okkur í hálfleiknum og koma mjög sterkar fyrstu mínúturnar í seinni hálfleiknum. Skoruðum en fengum svo bara mark beint í andlitið aftur. Þetta er bara ógeðslega erfitt,“ sagði Kristín. „Allar með skap og erfitt þegar ekkert virkar með manni“ Pirringurinn í leikmönnum Breiðabliks var mikill þegar leið á seinni hálfleik og Líf Van Bemmel fékk tvö gul spjöld og þar með rautt, þegar enn var korter eftir af leiknum. Hún var ekki eina sem lét svekkelsi sitt í ljós þannig að dómarinn tæki eftir því. „Skapið tekur bara yfir. Við erum allar með skap og auðvitað er erfitt þegar ekkert virkar með manni. Ég veit ekki einu sinni hvað skeði í þessu rauða spjaldi en svo fáum við líka klaufaleg gul spjöld og það var einhvern veginn ekkert að vinna með okkur.“ Liðin mætast aftur í Póllandi eftir viku en það er ekki hægt að búast við fjögurra marka viðsnúningi þar, eða hvað? „Við höfum alla vega trú á okkur og ætlum út til að vinna leikinn, það er alveg ljóst. Sýna betri frammistöðu, spila upp á stoltið og klúbbinn, og það er alveg á hreinu að við ætlum að vinna,“ sagði Kristín.
Evrópubikar kvenna í fótbolta Breiðablik Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira