Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2026 14:14 Tjaldbúðir förufólks í Ceuta, spænskri borg á norðurströnd Afríku. Þúsundir manna ruddust inn í borgina í júlí og sumir þeirra eru þar enn. Vísir/EPA Tólf manns þurftu á læknisaðstoð að halda og lögregla girti af hluta af byggingum spænska þingsins eftir að piparúði dreifðist um þær í dag. Piparúðinn kom frá þingmanni Lýðflokksins sem notaði hann sem leikmun í umræðum um innflytjendamál.
Ófremdarástand skapaðist í neðri deild spænska þingsins í morgun þegar piparúði barst um nokkur salerni og nærliggjandi svæði. Spænska blaðið El País segir að nokkrir starfsmenn í eldhúsi þingsins og starfsmenn þingflokka hafi kennt sér meins. Þeir hafi tárast og selt upp. Uppákoman átti sér stað eftir að Önu Vázquez, þingkonu Lýðflokksins, var vísað af fundi eftirlitsnefndar spænska þingsins fyrir að draga upp piparúðabrúsa sem hún fullyrti þó að væri tómur. Eftir að lögregla hafði girt af herbergi sem voru menguð með piparúða, þar á meðal herbergi þingflokka, mötuneyti og vinnurými, gekkst starfsmaður Lýðflokksins við ábyrgð á atvikinu. Vázquez hefði beðið hann um að þrífa brúsann. Ekki vildi þó betur til en svo að hann úðaði óvart úr brúsanum inni á salerni. Einn starfsmaður þinghússins er þegar sagður hafa lagt fram kæru til lögreglu vegna uppákomunnar. Þá var mat hent út mötuneyti þinghússins. Sendinefnd frá Máritaníu er sögð hafa hrökklast frá salernum þinghússins vegna lyktarinnar. Ein kona úr nefndinni er sögð hafa þjást af áköfum einkennum vegna úðans. Sagði brúsann tákn um helsi kvenna í Ceuta Piparúðabrúsann ætlaði Vázquez að nota til þess að undirstrika mál sitt varðandi öryggi kvenna í borginni Ceuta, spænsku yfirráðasvæði í Norður-Afríku með landamæri að Marokkó. Þúsundir manna brutu sér leið yfir landamærin í júlí og langan tíma hefur tekið að vísa þeim öllum burt. „Þetta er tákn um þá frelsisskerðingu sem konur í Ceuta sæta. Þetta er dæmigerður búnaður fyrir skóla,“ sagði Vázquez og veifaði úðabrúsanum þar til Francina Armengol, forseti neðri deildarinnar, vísaði henni á dyr. „Þingmenn, sem hafa þá skyldu að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar, mega ekki gera það sem við myndum ekki leyfa neinum öðrum að gera í þessu húsi,“ sagði Armengol sem sagði að úðabrúsinn væri vopn.
Spánn Innflytjendamál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira