Sport

„Ég var hálf­viti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“

Andri Broddason skrifar
Sean Strickland fékk þungt höfuðhögg en hann er vanur þeim þegar hann keppir í blönduðum bardagalistum.
Sean Strickland fékk þungt höfuðhögg en hann er vanur þeim þegar hann keppir í blönduðum bardagalistum. Michelle Farsi/Zuffa LLC

MMA-bardagakappinn Sean Strickland segist hafa verið heppinn að vera á lífi eftir að hann lenti í árekstri. Hann var farþegi í buggy-bíl sem vinur hans, Chris Cornell, var að keyra sem velti sex hringi á 100 kílómetra hraða.

Sean Strickland fjallaði um málið á Instagram-síðu sinni þar sem hann uppfærði fylgjendur sína um ástandið á bæði sér og Cornell. Einnig var Strickland að taka upp myndband þegar áreksturinn varð og deildi hann því á Instagram. Þar sést líða yfir vin hans sem var að keyra bílinn.

Strickland fór ekki upp á spítala þrátt fyrir að honum var illt í viðbeininu og hausnum eftir að hafa skallað jörðina sex sinnum á miklum hraða. Hann sagðist vera hálfviti í myndbandinu fyrir að hafa ekki verið með hjálm á meðan hann var í buggy-bílnum.

Þrátt fyrir að vera með mikinn höfuðverk sagði Strickland að hann ætlaði ekki að láta áreksturinn stoppa sig og ætlaði að taka æfingabardaga daginn eftir áreksturinn. Þrátt fyrir að hafa meitt sig sagði Strickland að þetta væri eitt það skemmtilegasta sem hann hefði gert í langan tíma.

Í maí varð hann UFC-meistari í miðvigt eftir að hafa unnið Khamzat Chimaev. Þetta er í annað skipti sem hann verður meistari í þeim þyngdarflokki en hann náði því líka árið 2023 þegar hann vann Israel Adesanya óvænt.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×