Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2026 12:02 Flugvirkjafélag Íslands segir félagsmenn sína hafa dregist aftur úr sambærilegum stéttum í launum eftir kjaraskerðingu í heimsfaraldrinum. Deilan við Icelandair snúist einnig um vaktir, verktöku og framtíð starfa hér á landi. Flugvirkjar hafa boðað ótímabundið verkfall frá 23. september. Vilhelm Flugvirkjafélag Íslands gagnrýnir umræðu um 1,4 milljónir króna í meðallaun flugvirkja og segir meðaltalið geta gefið villandi mynd af kjörum þeirra.
Félagið birti í gær samantekt um kjaradeiluna við Icelandair. Þar er ekki tilgreint hvaðan talan er fengin. Flugvirkjar Icelandair hafa samþykkt ótímabundið verkfall frá 23. september. Verkfallsboðunin hlaut stuðning 88,3 prósenta þeirra sem greiddu atkvæði og kjörsókn var 92 prósent. Grunnlaun og heildarlaun segja ólíka sögu Félagið nefnir 698.499 króna grunnlaun flugvirkja með sveinspróf og fimm ára starfsreynslu. Meðallaun geti einnig tekið til vaktaálags, yfirvinnu og yfirmanna. Samantekt Flugvirkjafélagsins. Samkvæmt skilgreiningum Hagstofunnar eru grunnlaun dagvinnulaun án aukagreiðslna. Heildarlaun ná hins vegar einnig til meðal annars yfirvinnu og óreglulegra greiðslna, svo sem orlofs- og desemberuppbótar. Segja launaþróun hafa verið lakari Samkvæmt tölum Flugvirkjafélagsins hækkuðu grunnlaun um 27,2 prósent á árunum 2019 til 2025, en um 50 prósent hjá sambærilegum tæknimenntuðum stéttum. Félagið segir grunnlaun flugvirkja hafa verið 47.277 krónum yfir samanburðarhópnum árið 2019 en 40.500 krónum undir honum árið 2025. Samkvæmt þessum tölum hefur staða flugvirkja gagnvart hópnum því versnað um 87.777 krónur á mánuði. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur lýst annarri sýn á launaþróunina. Í viðtali við Bylgjuna 12. september sagði hann flugvirkja hafa fengið hækkanir á samningstímanum í takt við almenna vinnumarkaðinn, þótt samningurinn hefði verið gerður árið 2020. Kjaraskerðingu lýst þegar samið var árið 2020 Greint var frá því að flugvirkjar hefðu tekið á sig skerðingu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar árið 2020. Guðmundur Úlfar Jónsson, þáverandi formaður félagsins, lýsti breytingum á vinnutíma og skerðingu aukagreiðslna. Í tilkynningu Icelandair sama dag kom fram að samningurinn næði frá 1. janúar 2021 til ársloka 2025 og væri ætlað að styrkja samkeppnishæfni félagsins til lengri tíma. Kostnaðarmat og bein launahækkun Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði við Vísi í gær að Icelandair meti kostnaðaráhrif launakrafna flugvirkja um 25 til 30 prósent á tveimur árum. Það væri langt umfram það sem félagið teldi hægt að réttlæta. Í samantekt Flugvirkjafélagsins er spurt hvort flugvirkjar séu að krefjast 25 til 30 prósenta launahækkunar. Svar félagsins er afdráttarlaust: „Nei. Það er villandi framsetning.“ Félagið segir mat Icelandair á kostnaði við kröfurnar ekki jafngilda kröfu um samsvarandi beina launahækkun. Jafnframt þurfi að taka tillit til þeirrar eftirgjafar sem flugvirkjar hafi samþykkt þegar illa áraði hjá Icelandair og áhrifa hennar á launaþróun. „Flugvirkjar eru ekki að koma inn í þessa samningalotu frá sama upphafspunkti og aðrir. Þeir tóku á sínum tíma á sig stórt högg til að styðja við Icelandair þegar illa áraði með tilheyrandi skerðingu á launaþróun,“ segir í samantektinni. „Það er ekki hægt að horfa eingöngu á nýja prósentuhækkun án þess að horfa á launaþróunina sem leiddi hingað.“ Vaktir og framtíð verkefna líka undir Félagið segir Icelandair vilja rýmri verktakaheimildir og vaktabreytingar án samráðs, meðal annars stytta tólf klukkustunda vaktir í tíu. Að mati félagsins geti það haft áhrif á tekjur, fjölda vinnudaga og fyrirsjáanleika í fjölskyldulífi. Í fyrri yfirlýsingu félagsins voru jafnframt settar fram áhyggjur af flutningi sérfræði- og tæknistarfa úr landi. Félagið segir þar verðmæta þekkingu og framtíðarverkefni í húfi. Vísir greindi frá því 24. apríl að Icelandair hefði stofnað dótturfélag í Vilníus og auglýst eftir sérfræðingum. Dótturfélagið ætti að skipuleggja og hafa eftirlit með viðhaldi véla í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum Loftleiða, leiguflugsarms Icelandair. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði þá í svari við fyrirspurn Vísis að deildin á Íslandi sem sinnti verkefnunum væri í endurskipulagningu. Engum hefði verið sagt upp vegna stofnunar dótturfélagsins. Markmiðið væri að efla leiguverkefni Icelandair og aðgreina þau betur frá öðrum verkefnum fyrirtækisins. Engir formlegir fundir fyrirsjáanlegir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði við Vísi í morgun að engir formlegir samningafundir væru fyrirsjáanlegir og ekki væri tímabært að leggja fram miðlunartillögu. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir enga formlega samningafundi fyrirsjáanlega í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair. Ekki sé tímabært að leggja fram miðlunartillögu.Vilhelm Hann væri þó í stöðugu sambandi við deiluaðila og hefði reynt að leggja fram tillögur til lausnar án árangurs. Fyrri verkföll röskuðu ferðum þúsunda Vísir tók saman yfirlit í vikunni um fyrri aðgerðir flugvirkja vegna kjarabaráttu við Icelandair. Alls hafa þeir lagt niður störf sjö sinnum í fjórum kjaradeilum á árunum 2010 til 2017. Alþingi bannaði verkfall þeirra í mars 2010 með lögum. Sólarhringsverkfall árið 2014 leiddi til þess að 65 flug féllu niður og ferðir um tólf þúsund farþega röskuðust. Verkfall í desember 2017 stóð í 46 klukkustundir. Þá féllu 64 flug niður og ferðir um tuttugu þúsund farþega röskuðust. Í uppgjörstilkynningu Icelandair frá 9. febrúar 2018 var kostnaður verkfallsins árið 2017 tilgreindur sem fjórar milljónir Bandaríkjadala. Verkfallið var ein helsta skýring lakari afkomu fjórða ársfjórðungs. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í sömu yfirferð Vísis að tekjutap greinarinnar gæti nú numið rúmum milljarði króna á dag ef þeir farþegar Icelandair sem ættu að koma þann dag skiluðu sér ekki til landsins. „Verkfall er ekki markmiðið“ Í lok samantektar Flugvirkjafélagsins er hvatt til þess að viðræður hefjist að nýju: „Verkfall er ekki markmiðið. Við viljum semja. Flugvirkjar hafa sent skýr skilaboð og nú vonumst við til þess að Icelandair taki þeim skilaboðum alvarlega og komi aftur að samningaborðinu. Við erum tilbúin.“
Icelandair Kjaramál Ferðaþjónusta Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Sjá meira