Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar 21. september 2026 08:02 Í dag 21. september er alþjóðlegur dagur Alzheimer. Sjúkdómur sem ég þekki orðið vel til, en elsku mamma greindist með hann árið 2021. Eins og algengt er get ég þó spólað nokkuð mörg ár aftur í tímann og áttað mig á einkennum. Núna hefur hún verið á hjúkrunarheimili í rúm þrjú ár og er því nokkuð langt gengin í sinni heilabilun. Að vera aðstandandi getur oft á tíðum verið flókið og erfitt og hef ég í gegnum árin upplifað margar ólíkar tilfinningar, s.s. sorg, reiði, depurð og söknuð. Samviskubitið lætur líka reglulega á sér kræla, t.d. að geta ekki farið til hennar nógu oft. Ég er samt orðin nokkuð góð í því að eiga með henni góðar og notalegar stundir. Hætt að vera með hnút í maganum á leiðinni til hennar, ekki vitandi hvað bíði mín, þar sem ég kann orðið ansi mörg trix í samskiptum okkar. Þekkir hún þig? Ég er reglulega spurð að því hvort mamma þekki mig. Eitthvað sem aðstandendur einstaklinga með langt gengna heilabilun þekkja ef til vill flestir. Ég svara ávallt: Já, hún þekkir mig með hjartanu. Hún veit að ég er einhver sem henni þykir vænt um og þykir gott að umgangast. Þessi staðreynd og hugsun hefur hjálpað mér mikið í minni sorg. Hún þekkir mig bara á aðeins annan hátt en áður. Þó hún kalli mig ekki mínu rétta nafni eða átti sig stundum ekki á því að ég sé dóttir hennar þá veit hún að ég er einhver sem stend henni nærri. Inn í hennar heim Nýverið var ég spurð: „Kemur hún stundum til baka, dettur hún inn?“ Þessu var fljótt svarað en fékk mig líka í raun til að skrifa þessa grein. Nei, mamma er alveg í sínum heimi. Ég þarf að fara inn í hennar heim í stað þess að reyna að fá hana inn í minn, eitthvað sem hún getur ekki sökum sinna veikinda. Hún talar oftast út í eitt, allt frekar samhengislaust og býr líka til fullt af nýjum orðum. Ég tek samt bara þátt í hennar spjalli, þó ég skilji það ekki endilega, spila með. Þá er líka mikilvægt að muna að samvera er svo margt meira en samtal. Við hlustum saman á tónlist, syngjum, borðum súkkulaði, ég dekra við hana og geri hana fína. Ég nýt þess að vera góð við hana og eiga með henni stund. Stundum er hún eitthvað öfugsnúin og þá tek ég gjarnan upp símann, kveiki á Snapchat og set einhverja fyndna filtera á okkur mæðgur. Þá hlæjum við saman og ég fer frá henni glöð í hjarta eftir skemmtilega stund og hún er líka glöð, þó hún muni ekki hvað við vorum að gera. Tilfinningar enn til staðar Það er mikilvægt að muna að einstaklingar með langt gengna heilabilun sem geta illa tjáð sig eða gert sig skiljanlega finna samt enn tilfinningar. Mamma verður glöð, hlær og brosir. Stundum er hún líka reið eða döpur. Það renna sem dæmi oft tár ef við hlustum á lag sem henni þykir fallegt. Munum að þau njóta nærverunnar þó þau geti ekki alltaf sýnt að þau geri það. Að minna á mömmu Mér finnst mikilvægt að minna á mömmu og sýna að það sé hægt að eiga notalegar stundir með veikum einstaklingum eins og henni. Þegar ég er í heimsókn tek ég því gjarnan fallega mynd sem fangar stemmninguna í heimsókninni og birti á mínum samfélagsmiðlum (í story). Ég minni þannig á mömmu en kem líka með hugmyndir að samverustundum. Þá eru þessar myndir einnig góðar minningar sem ég ylja mér gjarnan við. Höfundur er dóttir en einnig fræðslustjóri Heilahjálpar – samtaka um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson Skoðun Halldór 10.10.2026 Halldór Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er ég bara ónýtt kolefniseining? Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líkaminn særir egóið Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ríkið hefur gert sig að ritstjóra Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Afkomuöryggi er forsenda listsköpunar Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tóm-stundar-iðkun Kristín Björg Viggósdóttir skrifar Skoðun Sjáðu þig - taktu eftir breytingum Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar Skoðun Í hverju felst virðing fyrir lífinu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvað er títt af Seðlabankastjóra og unnustu hans? Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn – Hlustum á raddir fólks með reynslu Helga Arnardóttir skrifar
Skoðun Hvert fara milljarðarnir og hver hjálpar fólki út úr neyslunni? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Geðheilbrigði - sameiginlegt verkefni okkar allra Snæfríður Jóhannesdóttir,Þórey Rósa Einarsdóttir skrifar
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar