Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar 15. september 2026 07:32 Sjálfræði (e. autonomy) hefur lengi verið hornsteinn í heilbrigðissiðfræði og er eitt af lykilhugtökum í umræðunni um dánaraðstoð. Í heilbrigðissiðfræði felur sjálfræði meðal annars í sér að einstaklingur geti: skilið og metið upplýsingar um stöðu sína og valkosti, vegið og metið mögulegar afleiðingar þeirra og komið ákvörðun sinni á framfæri. tekið ákvörðun af frjálsum vilja: ákvörðunin þarf að endurspegla vilja einstaklingsins sjálfs og vera tekin án þvingunar eða óeðlilegs þrýstings frá öðrum. Þessi skilningur liggur meðal annars til grundvallar hugtakinu upplýst samþykki (e. informed consent) í heilbrigðisþjónustu. Áhyggjur af sjálfræði Í lok lífs geta ákveðnar aðstæður takmarkað sjálfræði og eru þær gjarnan nefndar í umræðu um dánaraðstoð: Ástand sjúklings getur haft áhrif á ákvörðunartöku: Miklir verkir, óráð, vitræn skerðing, áhrif lyfja eða alvarleg geðræn einkenni geta í sumum tilvikum haft áhrif á getu einstaklings til að skilja upplýsingar, meta valkosti og taka ákvörðun. Tímapressa getur þrengt að ákvörðun: Sjúkdómar geta þróast hratt og tíminn til ígrundunar oft verið takmarkaður. Óvissa um sjúkdómsgang: Þróun sjúkdóma er ekki alltaf fyrirsjáanleg og nýjar meðferðir eða bætt líkn getur stundum bætt líðan og lífsgæði. Hvernig má verja sjálfræði? Regluverk um dánaraðstoð leitast víða við að mæta þessum áhyggjum með sérstökum verndarráðstöfunum: Regluverk stuðlar að vönduðu mati: Víða er krafist sjálfstæðs mats tveggja eða fleiri lækna eða annarra hæfra heilbrigðisstarfsmanna á því hvort skilyrði séu uppfyllt, meðal annars hvort einstaklingurinn hafi ákvörðunarhæfni og hvort beiðnin sé sjálfviljug og sett fram án óeðlilegs þrýstings frá öðrum. Ef vafi vaknar um að geðræn einkenni eða vitræn skerðing hafi áhrif á ákvörðunarhæfni getur verið þörf á frekara sérfræðimati. Ferlið gefur svigrúm til ígrundunar: Í mörgum kerfum eru byggð inn tímamörk, endurteknar beiðnir eða fleiri en eitt matsþrep sem gefa svigrúm til að staðfesta að ákvörðunin sé stöðug og ekki tekin í bráðri neyð. Upplýst ákvörðun krefst upplýsinga um aðra valkosti: Í vönduðu regluverki þarf einstaklingur að hafa fengið upplýsingar um meðferð, líknarmeðferð og önnur úrræði sem gætu dregið úr þjáningu áður en endanleg ákvörðun er tekin. Þessar áhyggjur þurfa því ekki endilega að leiða til þess að dánaraðstoð sé útilokuð. Þær geta þess í stað verið rök fyrir því að um hana gildi strangt regluverk, vandað hæfnismat og öflugar verndarráðstafanir. Sjálfræði verður ekki til í tómarúmi Sjálfræði er ekki það sama og ótakmarkaður réttur til að fá hverja þá meðferð eða þjónustu sem einstaklingur óskar eftir. Læknar og aðrir fagaðilar gegna lykilhlutverki í að meta hvort einstaklingur hafi hæfni til ákvörðunar, hvort beiðnin sé sjálfviljug og sett fram án óeðlilegs þrýstings frá öðrum. Þannig stuðla þeir að því að lögbundin verndarskilyrði séu uppfyllt, án þess að taka sjálfa ákvörðunina fyrir einstaklinginn. Í regluverki um dánaraðstoð eru almennt sett skilyrði um meðal annars heilsufarsástand, sjálfviljuga beiðni og hæfni einstaklings til ákvörðunar, þótt nákvæm skilyrði séu mismunandi eftir löndum og lögsögum. Samfélagsleg viðmið móta einnig ákvörðunina. Í mörgum samfélögum ríkja sterk viðmið um að halda áfram að berjast eða að lífið eigi ávallt að hafa forgang, jafnvel þegar einstaklingurinn sjálfur telur lífsgæði sín mjög skert. Tengsl við fjölskyldu geta einnig haft áhrif á ákvarðanir. Stuðningur, væntingar, ótti við að valda ástvinum sorg eða sú tilfinning að vera byrði geta öll haft áhrif á það hvernig einstaklingur metur eigin stöðu. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli þeirra eðlilegu áhrifa sem tengsl okkar við aðra hafa á ákvarðanir okkar og óeðlilegs þrýstings eða þvingunar. Það eitt að ákvörðun mótist af tengslum okkar, gildum og aðstæðum þýðir því ekki að hún sé ekki sjálfviljug. Meginatriðið er hvort endanleg ákvörðun endurspegli upplýstan, sjálfstæðan og stöðugan vilja einstaklingsins. Hagnýtar spurningar fyrir Ísland Vaxandi áhugi á dánaraðstoð kallar á umræðu um mikilvægar spurningar, svo sem: Hvernig tryggjum við að viðkvæmir hópar verði ekki fyrir þrýstingi við ákvörðunartöku? Hver á að meta hæfni einstaklings til ákvörðunar? Ættu fleiri en einn fagmaður að koma að slíku mati og þurfa að liggja fyrir skýr og samræmd viðmið? Hvaða tímamörk eða ígrundunartími ætti að gilda frá beiðni til framkvæmdar? Hvernig má koma í veg fyrir að fólk óski eftir dánaraðstoð vegna þess að það upplifir sig sem byrði fyrir aðra eða samfélagið? Hver ber ábyrgð á hlutlausri upplýsingamiðlun um alla valkosti? Hvernig á eftirliti og gagnsæi að vera háttað? Hvernig tryggjum við að vernd viðkvæmra einstaklinga verði ekki svo víðtæk að hún svipti hæfa einstaklinga sjálfræði sínu? Hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt til þess að sjálfsákvörðun einstaklings geti réttlætt aðgang að dánaraðstoð? Stóra spurningin fyrir Ísland er því ekki aðeins hvort dánaraðstoð eigi að vera heimil, heldur einnig hvar við viljum draga mörk sjálfræðis við lífslok. Hvernig tryggjum við að ákvörðun sé upplýst, sjálfviljug og stöðug, án þess að vernd einstaklinga gangi svo langt að hæft fólk sé svipt möguleikanum á að ráða eigin lífslokum? Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun