Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar 14. september 2026 12:31 Í síðustu viku sagði einn helsti öryggisrannsakandi Anthropic, fyrirtækisins á bak við Claude, að hann teldi meira en tíu prósenta líkur á að gervigreind gæti tortímt mannkyninu innan næstu tíu ára. Tíu prósent! Það er ansi há tala þegar niðurstaðan er útrýming mannkyns. Kannski er því ekki skrýtið að fólk sé farið að finna fyrir kvíða vegna gervigreindar. Slíkur ótti er ekki með öllu nýr. Ný tækni hefur lengi vakið áhyggjur. Ritmálið átti að veikja minnið, prenttæknin að skapa upplýsingaóreiðu og síðar komu sjónvarp, tölvur, internetið og samfélagsmiðlar. Stundum reyndust áhyggjurnar ýktar. Stundum alls ekki. Þess vegna er ekki skynsamlegt að afgreiða ótta við gervigreind sem enn eitt siðfárið. Þróunin er hröð, afleiðingarnar óljósar og jafnvel fólkið sem þróar tæknina segist ekki vita hvert hún leiðir. Frá sjónarhóli sálfræðinnar er þetta nánast fullkomin uppskrift að kvíða. Kvíði nærist á óvissu. Hvað ef starfið mitt hverfur? Hvað ef börnin mín læra ekki að hugsa sjálf? Hvað ef kerfin verða öflugri en við ráðum við? Við reynum gjarnan að minnka slíka óvissu með meiri upplýsingum. Lesum fleiri fréttir, hlustum á fleiri hlaðvörp og fylgjumst með næsta stóra stökkinu í gervigreind. En stundum gerist hið gagnstæða. Dag einn lesum við að gervigreind muni lækna sjúkdóma og auka framleiðni. Daginn eftir að hún muni útrýma milljónum starfa. Þriðja daginn að tíu prósenta líkur séu á að hún útrými okkur öllum. Við ætlum að minnka óvissuna en endum á að mata hana. Þetta þýðir ekki að áhyggjurnar séu órökréttar. Við eigum að taka alvarlega mögulega áhættu af tækni sem verður sífellt öflugri. En tvær öfgar eru lítið hjálplegar. Að hlæja að allri gagnrýni sem tæknifælni eða haga sér eins og heimsendir sé nánast ákveðinn. Að mínu mati er synsamlegri afstaða að tileinka sér varfærna forvitni. Kynnast tækninni. Prófa hana. Sjá hvað hún getur gert og hvað hún getur ekki gert. Krefjast þess að alvarleg áhætta sé rannsökuð og að einhver beri ábyrgð þegar vélar taka sífellt stærri þátt í mikilvægum ákvörðunum. Við eigum að nota gervigreind þar sem hún hjálpar okkur. En hugsa okkur vel um áður en við afhendum henni þá hæfni sem við viljum sjálf halda í. Sérstaklega hæfnina til að hugsa. Það er það sem gerir okkur mannleg, jafnvel þó gervigreindin virðist stundum á yfirborðinu betri í að hugsa. Það er ástæða að við köllum þetta „gervi“greind. Og þegar kemur að kvíðanum sjálfum er kannski gagnlegt að muna að kvíði er ekki alltaf bara vandamál. Í hæfilegu magni er hann gagnlegur. Hann fær okkur til að undirbúa okkur, hugsa okkur um og taka áhættu alvarlega. Andstæðan við kvíða er nefnilega ekki alltaf hugrekki. Stundum er það kæruleysi. Markmiðið er því ekki að losna við alla óvissu eða allan kvíða. Það tekst sjaldnast, hvorki í meðferð né í lífinu. Markmiðið er að þola óvissuna nógu vel til að geta hugsað skýrt, metið áhættuna og haldið áfram að lifa eðlilegu lífi þótt við höfum ekki öll svörin. Það á við um heilsu, framtíð barna okkar, störfin okkar og nú líka gervigreind. Við eigum ekki að afneita óttanum. En við eigum heldur ekki að leyfa honum að stjórna. Rétt eins og við eigum ekki að leyfa gervigreindinni að stjórna. Höfundur er sálfræðingur og lektor við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun