Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar 2. október 2026 06:02 Alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa er þann 2. október. Í ár ber daginn upp á tímum þar sem mörg sem starfa í þjónustu við fatlað fólk upplifa óvissu, aukið álag og áhyggjur af framtíðinni. Þroskaþjálfar hafa áhyggjur af manneklu, auknu álagi, sífelldum sparnaðarkröfum og því hvort samfélagið sé að missa sjónar á þeim grunngildum sem þjónustan á að byggjast á. Einmitt þess vegna skiptir alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa máli. Hann minnir okkur á hver við erum, fyrir hvað stéttin stendur og hvers vegna við völdum þetta fag. Við urðum ekki þroskaþjálfar vegna þess að starfið væri auðvelt. Við völdum þetta fag vegna þess að við trúum því að öll eigi rétt á að lifa lífi með reisn, hafa áhrif á eigið líf og taka þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Mannréttindi eru ekki aðeins orð á blaði. Þau þarf að standa vörð um og tryggja í daglegu lífi fólks. Þroskaþjálfar styðja börn, ungmenni og fullorðið fólk til aukins sjálfstæðis og þátttöku. Þeir standa vörð um réttindi fólks þegar kerfin verða flókin og horfa fyrst og fremst manneskjuna, styrkleika hennar, vilja og drauma. Vinna þroskaþjálfa er því ekki alltaf sýnileg. Hún ratar sjaldan í fréttirnar en hún skiptir sköpum. Sem formaður Þroskaþjálfafélags Íslands verð ég reglulega vitni að þeim mikla krafti sem býr í stéttinni. Þroskaþjálfar sinna störfum sínum af fagmennsku og festu, jafnvel þegar á móti blæs. En nú þurfum við að spyrja mikilvægrar spurningar: Hvað kostar það samfélagið þegar ekki er fjárfest í góðri þjónustu? Góð þjónusta fyrir fatlað fólk byggist ekki aðeins á góðum vilja. Hún krefst fagþekkingar, nægilegs mannafla og þess að starfsfólk hafi svigrúm til að sinna störfum sínum af fagmennsku. Umræðan um mikilvægi fagmenntunar í þjónustu við fatlað fólk er ekki ný. Fyrir tæpum áratug ræddi ég sjálf um nauðsyn þess að fjölga fagmenntuðu starfsfólki. Enn er langt í land. Þess vegna veldur það sérstökum áhyggjum þegar fækkun fagfólks kemur til umræðu sem leið til sparnaðar hjá sveitarfélögum. Fækkun fagfólks má ekki verða sparnaðarleið í þjónustu við fatlað fólk. Þvert á móti ættu sveitarfélög landsins að sjá metnað sinn í því að halda í fagfólk og fjölga fagmenntuðu starfsfólki í þjónustunni. Það þarf að horfa lengra en til næsta fjárhagsárs. Hvað kostar það þegar fagþekking er ekki til staðar? Þegar ekki tekst að grípa nógu snemma inn í? Þegar þjónustan verður viðbragðsmiðuð í stað þess að vera fagleg, einstaklingsmiðuð ogfyrirbyggjandi? Góð þjónusta kostar peninga. En slök þjónusta getur reynst samfélaginu enn dýrari. Fagleg gæði og fjárhagsleg ábyrgð eru ekki andstæður. Fagþekking er ekki munaður sem hægt er að skera niður þegar þrengir að. Hún er grundvallarforsenda góðrar þjónustu. Að fjárfesta í fagþekkingu er ekki aðeins spurning um launakjör eða hagsmuni einnar starfsstéttar. Hún snýst um gæði þjónustunnar og þegar allt kemur til alls, um líf og réttindi þeirra einstaklinga sem eiga rétt á henni. Á alþjóðlegum degi þroskaþjálfa vil ég því þakka þroskaþjálfum landsins fyrir mikilvæg störf þeirra og minna okkur öll á eitt: Fagþekking þroskaþjálfa skiptir máli. Rödd þroskaþjálfa skiptir máli. Baráttan fyrir mannréttindum, sjálfræði, þátttöku og mannlegri reisn skiptir máli. Þótt óvissa og áskoranir blasi við megum við ekki missa sjónar á því sem skiptir mestu máli. Höldum áfram að sinna okkar mikilvæga starfi af fagmennsku, þekkingu og festu sem og stöndum vörð um þau réttindi og gildi sem fagið okkar byggist á. Því þegar allt kemur til alls eru það ekki kerfin sem skapa góða þjónustu. Það er fólkið. Innilega til hamingju með alþjóðlegan dag þroskaþjálfa. Höfundur er formaður Þroskaþjálfafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun