Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 12. september 2026 11:31 Hættum að öskra – finnum lausnirnar saman 7 verkefni Íslands til 2035 Í umræðum á Alþingi í vikunni sagði Guðrún Hafsteinsdóttir: „Það er engin þörf á að laga Ísland.“ Veltum okkur ekki upp úr þeirri setningu. Ísland er gott land og hér hefur margt verið vel gert. En ekkert samfélag er eða verður fullmótað eða fullkomið. Mikilvægari spurning er: Hvað getum við gert betur í dag en í gær og hver ber ábyrgð á hverju verkefni? Þessi hugsun hefur lengi verið rauður þráður í minni kennslu um leiðtogamenningu. Hún á jafnt við um einstaklinginn, fyrirtækið, sveitarfélagið og ríkið. Við skulum ekki eyða allri orkunni í að rífast um síðasta áratuginn. Spurningin er hvernig Ísland ætlar að vera samkeppnishæft næsta áratuginn. Hér nefni ég sjö verkefni Íslands til ársins 2035. 1. Lækkum verðbólgu og vexti Háir vextir eru einn stærsti samkeppnisvandi Íslands. Þeir leggjast á heimilin, bóndann og fyrirtækið sem vill fjárfesta og skapa störf. Ég hef reiknað sviðsmynd þar sem vaxtamunur Íslands og Danmerkur er yfirfærður á skuldir heimila, fyrirtækja og hins opinbera. Stærðargráðan er um 400 milljarðar króna á árinu 2026. Þetta er sviðsmynd sem ber að taka alvarlega, hún byggir á raunverulegum skuldum og vaxtamun. Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, hefur bent á vandann sem fylgir litlum sjálfstæðum gjaldmiðli. Lítið myntsvæði er berskjaldaðra fyrir fjármagnshreyfingum og gengissveiflum og erfiðara getur verið að tryggja varanlegan verðstöðugleika. Til samanburðar hefur meðalverðbólga á evrusvæðinu frá stofnun þess verið um 2%. Við þurfum því að þora að spyrja: Ber íslenska krónan áhættuálag sem heimili og fyrirtæki greiða með hærri vöxtum? Ábyrgðin liggur þó víðar. Seðlabankinn, stjórnvöld, sveitarfélög, vinnumarkaðurinn, fyrirtækin og við neytendur höfum öll áhrif á verðbólgu og stöðugleika. Markmiðið á að vera einfalt: Stöðugleiki og fjármagnskjör á Íslandi sem standast samkeppni við bestu nágrannaþjóðir okkar. 2. Rekum ríki og sveitarfélög af ábyrgð Frá 2020 hefur samanlagður halli hins opinbera verið nálægt 900 milljörðum króna. Hallarekstur safnast upp í skuldum sem við og komandi kynslóðir þurfum að greiða. Vaxtagjöld hins opinbera voru komin í um 210 milljarða króna árið 2025. Við getum ekki krafist aga af heimilum og fyrirtækjum en sætt okkur við viðvarandi hallarekstur hins opinbera. Ríki og sveitarfélög eiga að stefna að hallalausum rekstri yfir hagsveifluna og sýna að vel sé farið með skattfé. Spurningin má ekki alltaf vera: Hvaða skatta getum við hækkað? Heldur líka: Hvernig veitum við betri þjónustu fyrir sama fé? Allt opinbera kerfið þarf að gera almenningi skýra grein fyrir hvaða verkefni eru sett í forgang, hvað þau kosta og hvaða mælanlega árangri þau skila. Þannig skapast gagnsæi, ábyrgð og nauðsynlegt aðhald. Skattar standa undir góðu samfélagi. En verði skattar, gjöld og regluverk of íþyngjandi dregur það úr frumkvæði, fjárfestingu og verðmætasköpun. Við þurfum ekki endilega stærra kerfi. Við þurfum að skapa leiðtogamenningu þar sem við leitum stöðugt betri leiða til að fara vel með skattfé og veita rétta hagkvæma þjónustu. 3. Gerum Ísland samkeppnishæft – störfin þurfa að verða til hér Ísland er í samkeppni á hverjum degi; um fólk, fyrirtæki, fjármagn, hugmyndir, nýsköpun og fleiri verðmæt störf. Við tölum mikið um störfin sem eru hér. En miklu sjaldnar um störfin sem urðu aldrei til. Hversu mörg störf verða aldrei til á Íslandi vegna þess að fyrirtæki velur annað land? Hversu margar verksmiðjur eru ekki byggðar hér? Hversu margir frumkvöðlar byggja fyrirtæki sín annars staðar? Hversu mikil fullvinnsla íslenskra afurða fer fram erlendis vegna þess að hagkvæmara er að vinna vöruna þar? OECD hefur bent á miklar aðgangshindranir fyrir fyrirtæki á Íslandi og hindranir gagnvart erlendri fjárfestingu og alþjóðaviðskiptum. Mat OECD sýnir stærðargráðuna: Umbætur á regluverki gætu aukið landsframleiðslu á mann um 6–7% á tíu árum. Hér erum við að missa af gríðarlegum verðmætum. Við sjáum vandann líka í fullvinnslu íslenskra sjávarafurða. Þrátt fyrir EES-samninginn eru mikilvægar fisktegundir og ýmsar fullunnar vöru, njóta ekki tollfrelsis innan ESB. Ef tollar og önnur viðskiptakjör gera hagkvæmara að flytja hráefnið út og fullvinna það nær markaðnum getur niðurstaðan orðið einföld: Hráefnið fer frá Íslandi og hluti verðmætasköpunarinnar og störfin verða til erlendis. Við getum ekki talið nákvæmlega störfin sem urðu aldrei til. En það þýðir ekki að þau kosti okkur ekkert. Stærsta efnahagslega tapið sést ekki í tölunum: Fyrirtækið sem var aldrei stofnað. Verksmiðjan sem var aldrei byggð. Starfið sem varð aldrei til. 4. Gefum bóndanum tækifæri til að vera frumkvöðll Sama hugsun á við um íslenskan landbúnað. Umræðan má ekki eingöngu snúast um hversu mikinn stuðning þurfi til að viðhalda núverandi kerfi. Við þurfum líka að spyrja: Hvernig getur bóndinn skapað meiri verðmæti? Meiri fullvinnsla. Nýjar matvörur. Nýtt gervigreind og sjálfvirkni. Líftækni. Ferðaþjónusta. Útflutningur. Sterk íslensk vörumerki sem byggja á uppruna, hreinleika og gæðum. Ég hef áður varpað fram hugmyndinni í grein um Landklasa Íslands, þar sem Hvanneyri og Hólar gætu orðið mikilvægar stoðir. Tengjum saman bændur, háskóla, vísindafólk, sprotafyrirtæki, matvælafyrirtæki og fjárfesta. Við höfum séð hvað slíkt vistkerfi getur gert fyrir nýsköpun tengda sjávarútvegi. Af hverju ekki í landbúnaði? Bóndinn á ekki aðeins að vera framleiðandi hráefnis. Hann á að fá hvatningu og tækifæri til að vera frumkvöðull. 5. Byggjum innviði sem skapa verðmæti Samkeppnishæfni tengist ekki aðeins á sköttum og vöxtum. Við þurfum öfluga innviði. Orku. Raforkuflutninga. Vegi. Hafnir. Húsnæði. Almenningssamgöngur. Fjarskipti. Við búum yfir einni verðmætustu endurnýjanlegu orkuauðlind Evrópu. En fyrirtæki sem vilja byggja upp starfsemi hér þurfa að geta fengið orkuna afhenta. Sama gildir um vegi, hafnir og aðra innviði. Þegar fyrirtæki ákveður hvar það ætlar að fjárfesta skiptir heildarmyndin máli: vextir, skattar, orka, samgöngur, regluverk, vinnuafl, aðgangur að mörkuðum og gott mannlegt samfélag. Innviðir eru því ekki bara útgjöld. Réttir innviðir eru fjárfesting í framleiðni og verðmætasköpun næstu kynslóða. 6. Gerum þekkingu að stærstu fjárfestingunni Framtíð Íslands ræðst ekki aðeins af því sem er undir fótum okkar. Hún ræðst af þekkingu okkar og getuni til skapandi hugarfars – hvað er á milli eyrnanna á okkur. Árangur íslenskra barna í alþjóðlegum samanburði hefur versnað verulega. Í PISA hefur meðalárangur lækkað um meira en 40 stig frá 2006 til 2022. Þetta er ekki aðeins skólamál. Þetta er efnahagslegt framtíðarmál þjóðarinnar. Við eigum að leggja okkur fram um að börnin kunni; að lesa, reikna, hugsa gagnrýnið, skapa, vinna með öðrum og nýta nýjustu tækni. Menntun og þekkingaleit lýkur ekki við útskrift. Gervigreind og sjálfvirknivæðing eru þegar farin að breyta störfum okkar. Þess vegna þarf bóndinn, kennarinn, iðnaðarmaðurinn, læknirinn, stjórnandinn og stjórnmálamaðurinn reglulega að spyrja: Hvaða þekkingu þarf ég að bæta við mig? Hvaða tækni get ég nýtt? Hvernig get ég bætt þjónustu mína? Þjóð sem lærir hraðar og nýtir tæknina betur en aðrar þjóðir fær forskot. 7. Sköpum nýja leiðtogamenningu Kannski er þetta mikilvægasta verkefnið. Allt of mikil orka í stjórnmálum og meðal almennings fer í að leita að sökudólgum - hverjum eigi að kenna um. Ríkisstjórnin bendir á fyrri ríkisstjórn. Stjórnarandstaðan á ríkisstjórnina. Ríkið á sveitarfélögin. Sveitarfélögin á ríkið. Atvinnulífið á stjórnvöld og stjórnvöld á atvinnulífið. Á meðan bíða verkefnin. Leiðtogamenning byrjar á annarri spurningu: Hvað get ég gert í dag til að bæta stöðuna? Við þurfum öll að horfa í eigin barm, á hverju ber ég ábyrgð? Ekki á öllu. En hvert og eitt á sínu sviði. Við þurfum að ákveða hvernig við ætlum að byggja upp Ísland til ársins 2035 og hafa árleg mælanlegt árangursviðmið. Meðan við erum stöðugt að „öskra“ hvert á annað náum við ekki árangri. Til ársins 2035 ættum við að stefna að lægri verðbólgu og vöxtum, hallalausum opinberum rekstri yfir hagsveifluna, meiri framleiðni og fjárfestingu, fleiri fyrirtækjum og vel launuðum störfum, meiri fullvinnslu íslenskra afurða, betri innviðum og betri námsárangri. Birtum síðan árlega einfalt mælaborð árangurs Íslands 2035. Berum okkur saman við Danmörku, Svíþjóð, Noreg og önnur lönd sem við viljum standa jafnfætis. ·Eru vextirnir að nálgast þeirra? ·Er framleiðnin að aukast? ·Eru fleiri fyrirtæki að velja Ísland? ·Eru fleiri störf að verða til? ·Erum við að fullvinna meira af okkar eigin auðlindum? ·Eru börnin okkar að ná betri árangri? Þá hættir stjórnmálaumræðan að snúast eingöngu um skoðanir og fer líka að snúast um raunveruleg verkefni og árangur. Ísland er gott land og einmitt þess vegna eigum við að hafa metnað til að gera það enn betra. Ég vil að við þróum leiðtogamenningu hugarfars: Við getum gert betur í dag en í gær. Spyrjum því ekki aðeins hverjum sé um að kenna. Spyrjum: Hver er lausnin? Hver ber ábyrgð og á að sinna verkefninu? Hvað get ég lagt af mörkum? Hættum að „öskra“ hvert á annað. Finnum lausnirnar saman. Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um leiðtogastjórnun og framtíð Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun