Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar 12. september 2026 10:03 Þingmenn Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins vilja nú sérstakt átak gegn mink í íslenskri náttúru og aukið opinbert fé til verkefnisins. En áður en við skattgreiðendur erum enn einu sinni látnir greiða fyrir loðdýraræktina, væri ekki skynsamlegri nálgun að binda endi á loðdýrarækt og banna innflutning minka til landsins? Það er nefnilega undarlegt að lýsa minknum sem svo alvarlegu umhverfisvandamáli að kalla þurfi eftir auknum fjárframlögum vegna hans en um leið halda opnum möguleikanum á áframhaldandi ræktun og innflutningi. Best er að byrja á byrjuninni.Minkurinn var fluttur til landsins árið 1931 til loðskinnaframleiðslu. Vera ameríska minksins í íslenskri náttúru er því afleiðing mannlegrar og pólitískrar ákvörðunar, ákvörðunar sem tekin var þrátt fyrir viðvaranir. Árið 1932 varaði náttúrufræðingurinn Guðmundur G. Bárðarson við frekari innflutningi minka og þeim afleiðingum sem villtur minkastofn gæti haft fyrir íslenskt fuglalíf. Lítið var gert úr áhyggjum hans. Framhaldið þekkjum við. Minkar sluppu úr haldi, lifðu íslenskan vetur af, fjölguðu sér og dreifðust um landið. Skömmu síðar var hið opinbera farið að verja fjármunum í að fást við dýrið. Þann reikning hefur almenningur greitt síðan. Og ekki nóg með það: loðdýraræktin sjálf hefur jafnframt notið ríkulegs opinbers stuðnings í gegnum tíðina. Framsóknarflokkurinn ber sérstaka ábyrgð. Fyrsti innflutningur minks átti sér stað árið 1931 í tíð Framsóknarstjórnar og loðdýrarækt naut opinbers stuðnings. Þegar stjórnmálamenn tókust síðan á um það á Alþingi árið 1948 hver bæri ábyrgð á „minkasyndinni“ var því haldið fram að minkurinn hefði verið fluttur inn í tíð Framsóknarstjórnarinnar 1927–1931. Jónas Jónsson frá Hriflu svaraði einfaldlega: „Þá er rétt sagt frá.“ Árið 1951 var síðan lagt bann við nýjum minkabúum og gert ráð fyrir að þáverandi minkaeldi legðist af innan fárra ára vegna þess tjóns sem hafði orðið. En banninu var síðar aflétt. Þegar rætt var um að heimila minkaeldi að nýju sagði sjálfstæðismaðurinn Ásberg Sigurðsson á Alþingi árið 1968 að jafnvel þótt minkur slyppi ætti hann eftir að „aðlaga sig íslenzkri náttúru og lifa af íslenzkan vetur“. Hann kallaði andstöðu við minkaeldi „tilfinningamál“ og sagði:„Eins og menn eru á móti bjór, eru menn á móti mink.“ Ári síðar var minkaeldi heimilað að nýju. Og nú, tæpri öld eftir fyrsta innflutninginn, talar síðasti minkabóndi landsins um að fá fleiri dýr til landsins til að halda ræktuninni áfram. Þingmenn sem telja mink svo alvarlegt vandamál að rétt sé að verja auknu almannafé í að sporna við honum hljóta jafnframt að beita sér gegn því að fleiri minkar verði fluttir til landsins og fyrir því að þeirri starfsemi sem kom vandanum af stað verði lokið.Minkurinn er ekki skrímslið í þessari sögu. Það vorum við mannfólkið sem fluttum hann hingað, lokuðum hann í litlu búri og ræktuðum fyrir feld. Þegar dýrin sluppu og afleiðingarnar komu í ljós voru það náttúran og dýrin sjálf sem urðu að gjalda. Það skýtur því skökku við að bregðast nú við afleiðingum slæmra ákvarðana manna með því að lýsa yfir „stríði“ við dýrið og gera áætlanir um tortímingu þess, án þess að byrja á byrjuninni og ráðast fyrst að rót vandans. Kæru þingmenn: lærið af mistökum forvera ykkar. Lærið af sögunni. Ekki ausa úr bátnum án þess að þétta gatið. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Líf Darradóttir Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar