Fótbolti

Gefa út yfir­lýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rang­túlkun“

Aron Guðmundsson skrifar
Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB í Danmörku. Hann tók við starfinu af Jóhannesi Karli Guðjónssyni.
Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB í Danmörku. Hann tók við starfinu af Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Mynd: AB

Forráðamenn danska knattspyrnuliðsins AB í Danmörku eru ósáttir með umfjöllun danska vefmiðilsins Bold sem sagði Fannar Berg Gunnólfsson, þjálfara AB, hafa veist að dómurum eftir leik liðsins gegn Kolding á dögunum.

Fannar fékk að líta rauða spjaldið í leiknum fyrir að sparka í auglýsingaskilti við völlinn og var málið tekið fyrir og Íslendingurinn dæmdur í tveggja leikja bann.

AB unir niðurstöðu aganefndar danska knattspyrnusambandsins en er hins vegar ekki sátt við þá umfjöllun sem málið fékk í Bold og segir hana „öfgafulla rangtúlkun“.

Búið sé að fara yfir myndefni frá leiknum. Félagið styður Fannar í málinu og segir hann aldrei áður hafa fengið rautt spjald á sínum ferli sem þjálfari.

„Fannar vissi ekki að hann mætti ekki fara inn á völlinn eftir leik í kjölfar þess að hafa fengið rautt spjald. Fannar ætlaði að biðja dómara leiksins afsökunar en var meinaður aðgangur,“ segir í yfirlýsingu AB sem má lesa í heild sinni hér.

Bold vitnar í úrskurð aganefndar danska knattspyrnusambandsins í sinni frétt af málinu en segir að auki að Fannar hafi reynt að nálgast dómara leiksins í leikmannagöngunum á leikvanginum sem spilað var á. Öryggisverðir hafi stöðvað för hans þar.

„Hann hefur brennandi áhuga á starfi sínu og vill einfaldlega skilja hvers vegna hlutirnir gerast og þróast eins og þeir gera. Ef það hefur komið óviðeigandi út í þessu tilfelli vitum við að hann harmar það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×