Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. september 2026 15:01 Móðir barnsföður Sexyy Red hefur stefnt tónlistarkonunni fyrir að siga fylgjendum sínum á hana og hvetja þá til ofbeldis. EPA Rapparanum Sexyy Red hefur verið stefnt af móður barnsföður síns eftir að hún sigaði fylgjendum sínum á konuna, bað þá um að sparka niður hurð hennar og hvatti þá til ofbeldis. Sexyy Red, sem heitir réttu nafni Janae Nierah Wherry, mætti ekki í þingfestingu málsins og hefur stefnandi því krafist útivistardóms í málinu og fimm milljónum dala í miskabætur.
Dægurmálamiðillinn TMZgreindi fyrst frá lögsókninni eftir að hafa komið höndum yfir dómskjöl málsins. Nicole Barnes, sem er móðir barnsföður Wherry og þar af leiðandi amma barns hennar, segir í stefnunni að Wherry hafi deilt heimilsfangi hennar á samfélagsmiðlum, beðið fylgjendur sína um að „sparka niður hurðina“ og beita hana ofbeldi. Barnes segir Wherry þannig hafa stefnt lífi hennar í hættu og hún þurft að yfirgefa heimili sitt vegna málsins. Barnes stefndi Wherry vegna málsins í mars 2025 og krafði hana um fimm milljónir Bandaríkjadala (um 600 milljónir íslenskra króna) vegna miska sem hún hlaut. Hún segir Wherry ekki hafa brugðist við stefnunni og hún þurft að birta stefnuna í dagblaði eftir að rapparinn hafði komið sér undan því að taka við stefnunni. Þingfesting í málinu hefur þegar farið og þar sem Wherry var ekki viðstödd hana hefur Barnes farið fram á að dæmd verði útivist í málinu. Með útivistardómi myndi meðferð málsins halda áfram án þess að fyrir liggi vörn af Wherry. Dómari hefur þó ekki tekið ákvörðun hvort svo verði. Lögfræðingur rapparans, John Lampert, tjáði sig við TMZ í kjölfar umfjöllunar miðilsins um málið. „Fullyrðingarnar í þessu máli eru tilhæfulausar og ekki á rökum reistar. Red hafnar þeim afdráttarlaust og hlakkar til að verja sig í dómsal,“ sagði Lampert um málið.
Bandaríkin Tónlist Fjölskyldumál Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Virðast vera aðeins meira en bara vinir Rappararnir Drake og Sexyy Red hafa enn á ný kynnt undir orðróm þess efnis að þau séu aðeins meira en bara vinir. 17. ágúst 2023 09:46 Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira
Virðast vera aðeins meira en bara vinir Rappararnir Drake og Sexyy Red hafa enn á ný kynnt undir orðróm þess efnis að þau séu aðeins meira en bara vinir. 17. ágúst 2023 09:46