Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar 10. september 2026 14:45 Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 markar tímamót. Eftir samfelldan hallarekstur frá árinu 2019 er stefnt að því að ríkissjóður verði loks rekinn hallalaust. Frumjöfnuðurinn verður tæpir 99 milljarðar króna í afgang. Frumjöfnuður þýðir að vaxtakostnaður (nettó) er dreginn frá heildarútgjöldum. Það er vandinn: nettó vaxtabyrðin (94 milljarðar) étur nánast allan þann afganginn. Eftir standa aðeins tæpir 5 milljarðar í heildarafgang. Það er dýrt að skulda (í krónum) á Íslandi Það er mikilvægt að skila afgangi, loksins. En þetta er skýr áminning um hvað skuldir og háir vextir kosta. Vaxtagjöld ríkissjóðs stefna í tæpa 169 milljarða króna á þessu ári og verða samkvæmt frumvarpinu um 155 milljarðar á næsta ári. Á sama tíma er uppsafnaður halli ríkissjóðs frá 2019 til loka þessa árs áætlaður 866 milljarðar. Vextir af þessum skuldum frá tíð síðustu ríkisstjórnar eru einir og sér 60 milljarðar króna á ári. En það er önnur hlið á þessari sögu sem við tölum of sjaldan um: hvað kostar okkur að fjármagna ríkið í krónum? Við höfum raunar mjög áhugavert samanburðardæmi úr samtímanum fyrir framan okkur. Óverðtryggt ríkisskuldabréf í krónum, RIKB 31, sem fellur í gjalddaga í ársbyrjun 2031, ber skv. stöðunni á skuldabréfamarkaði í gær, um 7,6% ávöxtunarkröfu. Í maí gaf íslenska ríkið hins vegar út fimm ára skuldabréf í evrum með nánast sama gjalddaga. Ávöxtunarkrafan var 3,352%. Eftirspurn fjárfesta var meira en tólfföld fjárhæð útgáfunnar. Sami skuldari. Svipaður lánstími. Munurinn er rúm fjögur prósentustig. Evran myndi spara ríkinu 112 milljarða – bara í vöxtum A-hluta ríkissjóðs Heildarskuldir ríkissjóðs verða samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um 2.650 milljarðar króna á næsta ári. Ef við leggjum þennan vaxtamun — um 4,2 prósentustig — á skuldastofn af þeirri stærðargráðu, fáum við tölu upp á rúmlega 110 milljarða króna á ári. Um 112 milljarða. Skuldir ríkisins eru af ólíkum toga og með mismunandi lánstíma. Þær endurfjármagna sig smám saman. Og meðan Ísland er með krónu og tekjur ríkissjóðs eru fyrst og fremst í krónum fylgir því gengisáhætta að taka lán í evrum. En reiknidæmið sýnir stærðargráðuna. Og hún er sláandi. Hvað eru 112 milljarðar í samhengi ríkisins? Víða þrengir að í ríkisrekstrinum á þessum aðhaldstímum. Bent er á góð og mikilvæg verkefni sem þurfi tugi milljóna, önnur jafnvel hundruði milljóna. Jafnvel milljarða. Ef vaxtakostnaður ríkisins væri 112 milljörðum lægri á hverju ári myndi það muna mjög miklu. Til að átta sig á samhenginu er sú tala næstum tvöföld öll útgjöld ríkisins til framhaldsskólastigsins, sem verða um 57 milljarðar á næsta ári. Eða allt háskólastigið, um 77 milljarðar, og 35 milljarðar til viðbótar. Upphæðin er um tíu sinnum hærri en fjárframlög íslenska ríkisins hefðu orðið til ESB ef Ísland gerðist þar aðili, skv. nýju mati fjármálaráðuneytisins og fjórum sinnum hærri en árlegt framlag úr ríkissjóði til íslenskra bænda. Hundrað og tólf milljarðar eru næstum 24 sinnum hærri fjárhæð en sá 4,7 milljarða afgangur sem við erum að leggja svo mikið á okkur til að ná í fjárlögum næsta árs. Vaxtareikninginn vegna krónunnar Við eigum auðvitað að sýna aga í ríkisfjármálum. Það er brýnt að stöðva hallarekstur og draga úr lánsfjárþörf. Það er einmitt tilgangurinn með fjárlögunum sem nú liggja fyrir Alþingi. En eftir umræðu sumarsins þar sem fjöldi fólks, og hagsmunaaðila, kaus að horfa fram hjá íslensku vaxtaumhverfi og kostum þess að taka upp evru finnst mér mikilvægara en áður að draga þetta fram og setja þetta í samhengi. Í umræðu um tugi milljóna, nokkur hundruð eða þegar við ræðum okkur í gegnum fjárlögin milljarð fyrir milljarð verðum við að horfast í augu við stærsta reikninginn, krónuvextina. Skuldir Íslands eru um miðjan hóp þegar við berum saman ríki Evrópu og ESB – en vaxtakostnaður okkar er einn sá al-hæsti. Þetta er kostnaðurinn við krónuna. Höfundur er þingmaður Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Mest lesið Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Skoðun Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun