Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Daníel Þór Bjarnason, Oddný Björg Rafnsdóttir, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifa 10. september 2026 12:30 Þriðjudaginn 8. september tilkynntu ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands og Kanada að þau myndu innleiða innflutningsbann á allar vörur sem framleiddar væru á því sem oft er kallað hernumdu svæðin í Palestínu. Löndin eru ekki þau fyrstu til að taka upp slíka stefnu en tilkynningin hefur engu að síður þegar vakið mikla athygli. Hér er um þrjú áhrifamikil lönd að ræða sem hafa tekið höndum saman um þetta málefni og níu önnur lönd gáfu sama dag út yfirlýsingar sem ekki var hægt að túlka öðruvísi en svo að þau muni feta í fótspor þeirra. Þessi aðgerð er síðbúin viðurkenning á því að hernám Ísraels í Palestínu frá árinu 1967 er ólöglegt og siðlaust. Aðgerðin kann að koma 63 árum of seint en ef hún er upphafið á því að Ísrael verði látið fara að alþjóðalögum, þá ber að fagna henni. Ísland er á meðal hinna níu landa sem gáfu í skyn að þau myndu fylgja þessu fordæmi. Vonandi ber að skilja það sem svo að hin máttvana aðgerð sem áður hafði verið boðuð, að ísraelskar vörur framleiddar á hernumdu landi yrðu sérmerktar í íslenskum verslunum, verði felld úr gildi og innflutningur þeirra bannaður með öllu. Hver er enda tilgangurinn með því að draga athygli neytenda að því að þeim standi til boða að kaupa þýfi, þegar auðveldlega er hægt að stöðva sölu þess? Við almenningur þurfum hins vegar ekki að bíða eftir því að stjórnvöld grípi til aðgerða. Við erum hvorki valdalaus né bjargarlaus. Íslenska sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu hefur starfað frá árinu 2014, að fyrirmynd alþjóðlegu hreyfingarinnar BDS (Boycott-Divestment-Sanctions) sem var stofnuð að frumkvæði borgaralegra hreyfinga í Palestínu árið 2005. Markmið sniðgönguhreyfingarinnar er að vekja athygli almennings á því að við getum lagt okkar af mörkum til að styðja palestínskt samfélag með því að sniðganga allar vörur sem eru framleiddar í Ísrael eða af alþjóðlegum fyrirtækjum í viðamiklum viðskiptum í Ísrael. Einnig hvetur hreyfingin stórfyrirtæki og sjóði til að draga sig úr fjárfestingum í ísraelsku efnahagslífi (divestment) og ríkisstjórnir til að leggja á viðskiptabann á Ísrael (sanctions) þar til það virðir rétt palestínskra borgara til lífs og frelsis. Er þá átt við viðskiptabann á landið allt, ekki bara svæðin sem hafa verið hernumin eftir árið 1967. Frá árinu 2023 höfum við fylgst með Ísrael fremja þjóðarmorð í beinni útsendingu á Gaza. Við höfum horft á Ísrael beita sömu aðferðum í Líbanon. Við höfum horft upp á hvernig Ísrael hlutar Vesturbakkan kerfisbundið í sundur. Við höfum horft upp á hernám, loftárásir og aðskilnaðarstefnu áratugum saman. En jafnframt höfum við horft upp á okkar eigin stjórnvöld og stjórnvöld í nágrannalöndum okkar styrkja Ísrael með diplómatískum hætti, með viðskiptum, með samstarfi á sviði menningar og íþrótta, með vopnaflutningum og vopnasölu. Við höfum horft upp á Vesturlönd taka þátt í þjóðarmorðinu í Palestínu og um leið hefur lögleysa aukist í heiminum. Þegar alþjóðalög eru dregin í svaðið þá finnum við fyrir því um allan heim. Það er auðvelt að fyllast vonleysi og máttleysi undir þessum kringumstæðum en það er líka ákaflega mikilvægt að láta ekki undan þessum tilfinningum. Við sem viljum sporna gegn þessu erum ekki ein, við erum mörg og saman höfum við áhrif. Það er ekki að ástæðulausu sem B-ið kemur á undan hinum stöfunum í nafni BDS hreyfingarinnar, það er vegna þess að almenningur mun alltaf vera á undan viðskiptalífinu og ríkisstjórnum í að standa með réttlætinu. Sniðgönguhreyfingin leggur áherslu á að velja fá vörumerki til að sniðganga en byggja upp þeim mun meiri þrýsting á þau. Hér á landi sniðgöngum við færsluhirðinn Rapyd, lyfjafyrirtækið Teva, HP tölvubúnað, Sodastream kolsýrutæki, hárvörufyrirtækið MoroccanOil, Coca Cola og ísraelska ávexti og grænmeti. Um þetta má fræðast nánar á vefsíðu samtakanna snidganga.is Næsta laugardag, þann 12. september, ætlum við að hittast í þriðja sinn og ganga saman Sniðgönguna, bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Markmið viðburðarins er þríþætt: Að sýna samstöðu með Palestínu Að vekja athygli á því hversu langt íslensk stjórnvöld eiga í land með að grípa til aðgerða gegn Ísrael í samræmi við alþjóðalög og vilja almennings Að vekja athygli almennings á sniðgöngu Sniðgangan á laugardaginn er löng, um tíu kílómetrar á höfuðborgarsvæðinu og um þrír km á Akureyri, til að undirstrika að sniðganga er langtímaverkefni. Þátttakendur ráða hvort þeir ganga alla gönguna eða hluta hennar og svo má einnig mæta eingöngu undir lok göngunnar til að hlusta á ávörp. Eftirfarandi félög standa að Sniðgöngunni:Sniðgönguhreyfingin BDS Ísland, Félagið Ísland-Palestína, Vonarbrú, Dýrið, Háskólafólk fyrir Palestínu og Stúdentafélag Háskólans á Akureyri. Við hvetjum öll til að tileinka sér einkunnarorð göngunnar í ár en þau eru: Sniðgöngum öll! Höfundar eru félagar í íslensku sniðgönguhreyfingunni BDS Ísland Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun