Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar 10. september 2026 11:46 Í sögulegri ræðu sinni á Evrópuþinginu árið 2016 varpaði Lord Jonathan Sacks, fyrrum yfirrabbí Breta, ljósi á hættulega endurkomu gyðingahaturs í Evrópu. Meginboðskapur hans var sá að gyðingahatur sé ekki aðeins vandamál gyðinga heldur sé það fyrsta einkennið um samfélagslegt hrun sem ógnar frelsi allra. Hatrið sem hefst hjá gyðingum endar aldrei hjá gyðingum Sacks undirstrikaði að það séu alvarleg mistök að líta á gyðingahatur sem einangraða ógn við gyðinga. Hvorki undir stjórn Hitlers, Stalíns né hryðjuverkasamtaka eins og ISIS, Al-Kaída eða Íslamsks Jíhad voru það gyðingar einir sem þjáðust. Gyðingahatur snýst í raun ekki um gyðinga sjálfa, heldur um gyðingahatara – fólk sem getur ekki tekið ábyrgð á eigin ósigrum og leitar að sökudólg til að kenna um sín vandamál. Þegar gyðingahatur blómstrar í menningarsamfélagi er það merki um að stjórnmál vonarinnar hafi vikið fyrir stjórnmálum óttans og hatursins. Þrjár kynslóðir gyðingahaturs Ein helsta greining Sacks er að gyðingahatur virki eins og veira sem stökkbreytist milli tímabila til að sneiða hjá sjálfsgagnrýni og hefðbundnu viðnámi samfélagsins: Á miðöldum voru gyðingar hataðir vegna trúar sinnar. Á nítjándu og framanverðri tuttugustu öld voru þeir hataðir vegna kynþáttar síns. Í dag eru þeir hataðir vegna þjóðríkis síns, Ísraels. Þrátt fyrir mismunandi birtingarmyndir er kjarninn alltaf sá sami: Að neita gyðingum um réttinn til að vera til sem frjálsar og jafnar manneskjur með sömu réttindi og aðrir. Réttlæting haturs með vísan í hæsta yfirvald Sacks benti á að auðvelt sé að hata en erfitt að réttlæta hatur opinberlega. Því hafa gyðingahatarar í gegnum söguna alltaf leitað til þess yfirvalds sem hæst stendur í menningu hvers tíma: Á miðöldum var það trúin (trúarlegt gyðingahatur). Í Evrópu upplýsingarinnar voru það vísindin (félagslegur darwinismi og kynþáttafræði social-nasismans). Í dag er hæsta siðferðilega og stjórnmálalega viðmiðið mannréttindi. Það hlýtur að vera hverri manneskju umhugsunarefni að eina virka lýðræðisríkið í Mið-Austurlöndum, Ísrael, sé ítrekað ásakað um fimm höfuðsyndir gegn mannréttindum: Kynþáttahatur, aðskilnaðarstefnu (apartheid), glæpi gegn mannkyni, þjóðernishreinsanir og hópmorð. Með því að færa rökfærsluna yfir í mannréttindamál geta iðkendur hins nýja gyðingahaturs þverskallast við að vera kynþáttahatarar og haldið því fram að þeir hafi aðeins athugasemdir við Ísraelsríki. Munurinn á gagnrýni og afneitun á tilverurétti (And-síonismi) Sacks gerði afgerandi greinarmun á lögmætri gagnrýni og gyðingahatri. Að gagnrýna ákvarðanir ríkisstjórnar Ísraels er sjálfsagt og ekki gyðingahatur, á sama hátt og það að gagnrýna bresku ríkisstjórnina dregur ekki í efa tilverurétt Bretlands. Gyðingahatur og and-síonismi í dag felst hins vegar í því að neita Ísrael, einu lýðræðis-gyðingaþjóðinni í veröldinni mitt á meðal 56 múslímskra einræðisríkja í Miðausturlöndum, um réttinn til að vera til. Af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna er Ísrael eina ríkið þar sem reglulega er kallað eftir algerri eyðingu þess. Vitsmunalegt hrun og spurningin um ábyrgð Sacks lýsti gyðingahatri sem ákveðnu vitsmunalegu hruni (cognitive failure). Þegar erfiðleikar steðja að hópi getur hann valið á milli tveggja spurninga: 1. „Hvað gerðum við rangt?“ – Þetta er upphaf sjálfsgagnrýni og er nauðsynlegt öllum frjálsum samfélögum til að þroskast fram á við. 2. „Hver gerði okkur þetta?“ – Þetta skilgreinir hópinn sem fórnarlamb, hylur eigin mistök og leiðir til leitar að sökudólgi. Sögulega hafa gyðingar orðið fyrir valinu þegar samfélög upplifa að heimur þeirra sé að snúast stjórnlaust. Aðvörun til Evrópu Sacks varaði við því að Evrópa sé aftur að smitast af þessari veiru, meðal annars vegna stafrænna miðla og neikvæðra áhrifa frá svæðum Islam, sem fóru aldrei í gegnum sjálfsgagnrýni og uppgjör eins og Evrópa gerði eftir Helförina þar sem tveimur af hverjum þremur gyðinga í álfunni var útrýmt skipulega. Ef Evrópa leyfir gyðingahatri að færast í aukana og flótta gyðinga frá álfunni að halda áfram, verður það upphafið að endalokum evrópsks frelsis. Nú eru 10 ár liðin frá ræðu Sacks á Evrópuþinginu. Allt sem hann sagði hefur gengið eftir: Tjáningafrelsinu og þar með lýðræðinu hefur hnignað með aukinni skautun og klofningi samfélaganna innan álfunnar. Gefum Lord Jonathan Sacks loka orðið: „Hatrið sem hefst gegn gyðingum endar aldrei hjá gyðingum. Ekkert samfélag sem hefur alið af sér gyðingahatur hefur nokkurn tímann megnað að viðhalda frelsi, mannréttindum eða trúarfrelsi til lengdar. Hvert samfélag sem er knúið áfram af hatri hefst á því að reyna að eyða óvinum sínum, en endar á því að eyða sjálfu sér.“ Heimildir: Sacks, Jonathan. (2016, 27. september). The Mutating Virus: Understanding Antisemitism. Ræða flutt á Evrópuþinginu í Brussel 2016. European Union Agency for Fundamental Rights. (2013). Discrimination and hate crime against Jews in EU Member States. FRA. Höfundur er frumkvöðull og áhugamaður um frjálsa hugsun, lýðræði, kristna trú og gildi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun