Atvinnulíf

Þegar allt er að fara fjandans til…

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sumir eru í essinu sínu þegar það er mikill hamagangur í fréttum og á samfélagsmiðlum. Á meðan aðrir upplifa sig andlega þreytta, finnst neikvæðnin ríkjandi og draga úr einbeitingarmætti og orku.
Sumir eru í essinu sínu þegar það er mikill hamagangur í fréttum og á samfélagsmiðlum. Á meðan aðrir upplifa sig andlega þreytta, finnst neikvæðnin ríkjandi og draga úr einbeitingarmætti og orku. Vísir

Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið.

En tók eitthvað betra við? 

Varla.

Kjarasamningar í uppnámi, þingið að setja sig í stellingar (hávaðinn er hafinn!) og almennt er umræðan á frekar neikvæðum nótum. 

Svo ekki sé talað um Pisa...

Stjörnurnar á sviðinu eru helst stjórnarliðar, stjórnarandstaða, forkólfar verkalýðsfélaga og forystufólk atvinnulífs en við þessa hópa bætast síðan allir hinir við sem eru aldeilis ósammála og vilja láta í sér heyra. Meira að segja Trump er nú búinn að eigna sér Ísland.

Er kannski allt að fara fjandans til?

Hér skal reyndar á það bent að sumir einfaldlega elska svona tíma! Eru nánast á refresh-takkanum stöðugt til að fylgjast með fréttum, sækja sér extra marga kaffibolla til að taka samtalið þar og eru þá ótaldir samfélagsmiðlarnir og ummælaskrifin.

Í þessum vikulokum beinast góðu ráðin að þeim hópi fólks sem upplifir sig svolítið andlega búið á þessu öllu saman.

Allt svo neikvætt eitthvað að það er ekki hægt annað en að hafa áhyggjur af því að rétt sé að hafa áhyggjur af öllu.

Allt hefur þetta áhrif á það hvernig okkur líður og hvernig okkur gengur. Meðal annars í vinnu og námi.

Hér eru fern hagnýt ráð til að verja geðheilsuna:

1. Tímastjórnun á fréttir og samfélagsmiðlum

Rannsóknir sýna að stöðug neysla á neikvæðum fréttum getur valdið langvinnum streitueinkennum og dregið úr andlegri seiglu. Í umfjöllun The Guardian um skaðsemi „dómsdagsskruns“ (e. doomscrolling) benda sérfræðingar á mikilvægi þess að setja skýr tímamörk, slökkva á tilkynningum og forðast fréttalestur í rúminu til að hlífa taugakerfinu.

2. Settu orkuna í þitt eigið áhrifasvæði

Ásgeir sér um stýrivextina og þú ert ekki beintengdur samningum um kjarasamninga né hefur þú nokkuð um fjárlögin að segja. Að minnsta kosti ekki fyrr en í næstu kosningum. Í augnablikinu er því skynsamlegast að setja orkuna í þau mál sem þú getur haft áhrif á. Að hafa stöðugar áhyggjur af hlutum sem eru algjörlega utan okkar stjórnar tæmir orkubirgðirnar hratt.

3. Birta og hreyfing fyrir veturinn

Haustþreyta og skammdegisdrungi byrja gjarnan að gera vart við sig einmitt á þessum árstíma. Líkamsrækt og dagsbirta eru ekki bara góð fyrir líkamann, heldur beinlínis nauðsynleg fyrir efnabúskap heilans. Sérfræðingar Mayo Clinic um árstíðabundið þunglyndi og forvarnir benda á að stuttur göngutúr utandyra snemma dags, dagsbirtulampar og regluleg hreyfing geti skipt sköpum við að koma í veg fyrir að við verðum orkulaus og niðurdregin þegar haustar.

4. Skjólið er heima

Ef andrúmsloftið í samfélaginu er eitrað og kalt þarftu að eiga öruggan griðastað heima. Prófaðu að setja tímabundið samræðubann á stjórnmál og kjaramál yfir kvöldmatarborðinu. Kveiktu á kertum, taktu upp bók í stað þess að horfa á umræðuþætti og hlúðu að nærumhverfinu.

Við fáum engu breytt um það að veturinn nálgast og pólitíkin mun áfram vera hávaðasöm. En við ráðum því hvort við mætum þeim veruleika með tættar taugar eða meðvituð um að vernda okkar eigið andlega rými.


Tengdar fréttir

Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn?

Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli.

Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof

Geðlæknir í San Francisco segir frá því í viðtali á dögunum að á einu ári hafi hann lagt inn tólf einstaklinga sem höfðu misst tengsl við raunveruleikann eftir mjög mikla notkun á gervigreind.

Uppsagnir fram undan og óttinn vex

Það eru engin ný tíðindi að það er kólnun í hagkerfinu. Fréttir hafa verið um uppsagnir og margir vinnustaðir búa sig undir uppsagnir.

Að læra af fimm mistökum Steve Jobs

Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×