Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. september 2026 20:42 Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair og auðjöfurinn Elon Musk eiga saman einn son. Samsett Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair segist hafa neitað að skrifa undir fjörutíu milljóna dala þagnarsamning við auðjöfurinn Elon Musk, barnsföður sinn. Í dag var frumsýnd heimildarmynd um ævi og feril Musks, auðugasta manns heims.
Myndin Musk var frumsýnd í dag á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Heimildarmyndaleikstjórinn Alex Gibney leikstýrir nærri fjögurra klukkustunda langri myndinni og fékk St. Clair til liðs við sig við gerð hennar. Aðspurð hvers vegna hún hefði samþykkt að taka þátt í gerð myndarinnar um barnsföður sinn sagði hún að henni hefðu verið boðnar 40 milljónir dala (rúmir 4,8 milljarðar íslenskra króna) til þess að tjá sig ekki. „Þegar þér er boðið slíkt vekur það umhugsun um hversu verðmætt mál þitt er. Hvers vegna að bjóða mér þessa upphæð til að tjá mig ekki?,“ sagði hún á blaðamannafundi er kemur fram í umfjöllun The Independent. Hún bætti við: „Hann [Musk] á almennt flókin sambönd, en flóknasta samband hans er við sannleikann.“ Hún vilji hins vegar setja börnunum sínum það fordæmi að velja sannleikann fram yfir efnisleg þægindi. St. Clair hefur áður sagt að samband hennar og Musks hafi byrjað á skilaboðasendingum á X, sem þá hét Twitter. Í fyrstu hafi hún ekki haft mikinn áhuga á Musk. Skömmu síðar hafi þau hist í höfuðstöðvum X þegar hún var 24 ára og hann 51. Seinna meir varð hún ólétt en sér hafi verið skipað að halda barninu leyndu. Eftir að hún eignaðist barnið myndaðist umræða á netinu um að Musk væri faðir þess og St. Clair segir að öfgafullir aðdáendur auðjöfursins hafi byrjað að senda sér hótanir og hótað barni hennar. Í febrúar í fyrra birti hún staðfestingu á faðerni barnsins og bað hún fjölmiðla um að virða einkalíf þess. Valdi vísvitandi sundrungu Myndin Musk fjallar að hluta til um yfirtöku auðjöfursins Elons Musk á forritinu X (áður Twitter) og því sem Gibney lýsir sem „algrímsstjórnun“ (e. algorithmic manipulation). Blaðamaðurinn Zoë Schiffer, sem er einn viðmælenda í myndinni, segir meðal annars Musk hafa breytt algríminu til þess að þagga niður meginstraumsblaðamennsku og ýtt undir ögrandi athugasemdir á miðli sínum. St. Clair sagði Musk valda vísvitandi sundrungu „sem gæti haft skelfilegar afleiðingar ef hún er ekki undir eftirliti eða hömluð.“ Blaðamaðurinn Zoë Schiffer, leikstjóri myndarinnar Alex Gibney, Alberto Barbera einn forstöðumanna kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum og Ashley St. Clair.Getty Meðal annarra viðmælenda í myndinni er faðir Musks, Errol Musk, meðstofnandi fyrirtækisins Tesla, Martin Eberhard, og fyrrverandi eiginkona Musks, Justine Wilson. Talið er að Musk eigi fjórtán börn með fjórum konum. Fimm börn með fyrrnefndri Wilson, þrjú með kanadísku söngkonunni Claire Elise Boucher, eða Grimes, og þrjú með Shivon Zilis, yfirmanni Neuralink, fyrirtækis í hans eigu.
Elon Musk Bandaríkin Samfélagsmiðlar X (Twitter) Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira