Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2026 10:12 Elliði Snær Viðarsson og félagar mæta Kúveit í janúar. vísir/Vilhelm Nýir mótherjar eru nú fundnir eftir að Egyptar sviku samkomulagið um að koma til Íslands í janúar og spila vináttulandsleiki við strákana okkar í íslenska handboltalandsliðinu.
HSÍ greindi frá því í dag að Ísland myndi mæta lærisveinum Arons Kristjánssonar í liði Kúveit, 7. og 9. janúar, í Laugardalshöll. Leikirnir eru þeir síðustu áður en Ísland mætir til leiks á HM í Þýskalandi. Til stóð að Ísland myndi spila heimaleiki við Egyptaland í janúar, eftir að hafa spilað tvo vináttuleiki í Egyptalandi síðastliðið vor, en Egyptar hættu skyndilega við Íslandsförina. „Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Kúveit um þessa leiki. Þetta verður góður prófsteinn fyrir okkur í aðdraganda HM og jafnframt frábært tækifæri fyrir stuðningsfólk íslenska landsliðsins að sjá strákana okkar í Laugardalshöll í síðustu undirbúningsleikjum fyrir mótið,“ segir Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, í tilkynningu. Kúveit hefur um árabil verið meðal sterkustu landsliða Asíu og vann liðið bronsverðlaun á síðustu Asíuleikum. Liðið leikur eins og fyrr segir undir stjórn Arons Kristjánssonar sem var einmitt landsliðsþjálfari Íslands á árunum 2012-2016. Stefán Árnason var svo ráðinn aðstoðarþjálfari Kúveit í sumar. Kúveit er á leiðinni á HM eins og Ísland, í janúar. Íslendingar eru í H-riðli með Barein, Japan og Norður-Makedóníu, og fara svo væntanlega í milliriðil með þremur liðum úr G-riðli en þar spila Danmörk, Slóvenía, Bandaríkin og Angóla. Kúveit spilar í D-riðli á HM, með Argentínu, Frakklandi og Brasilíu.
HM karla í handbolta 2027 Landslið karla í handbolta Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira