Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir og María Barbara Árnadóttir skrifa 8. september 2026 10:33 Hjartaendurhæfing er mikilvæg og er þjóðfélagslega hagkvæm fyrir alla. Fjöldi aðgerða á hjarta eru framkvæmdar á ári hverju auk þess sem margir veikjast en fara ekki í aðgerðir. Áhrif hjartaendurhæfingar fyrir einstaklinga sem þarfnast þjálfunar eftir veikindi tengd hjarta eins og hjartaáföll, opnar hjartaaðgerðir eða kransæðavíkkanir eru vel þekkt og þjálfunin örugg. Í klínískum leiðbeiningum Evrópsku hjartasamtakanna (ESC) sem komu út nú í ár er lögð aukin áhersla á hjartaendurhæfingu sem hluta af meðferð einstaklinga sem eru að kljást við veikindi sem tengjast hjarta. Hér á landi hefur þverfagleg hjartaendurhæfing verið starfrækt áratugum saman meðal annars á Landspítalanum, Reykjalundi og á Endurhæfingastöðvum hjarta- og lungnasjúklinga (HL stöðvar) í Reykjavík og á Akureyri. Flestir sem búa á höfuðborgarsvæðinu og hafa þörf fyrir hjartaendurhæfingu hefja hana á Landspítalanum og þeir sem búa á landsbyggðinni sækja þessa þjónustu gjarnan hjá sjúkraþjálfurum í sínu nærumhverfi. Í framhaldi af því tekur við frekari þjálfun sem oftast fer fram á Reykjalundi eða á HL stöðvunum. Mikilvægt er að þeir sem veikjast og/eða fara í aðgerðir tengdum hjarta stundi reglubundna hreyfingu og þjálfun undir faglegri leiðsögn og eftirliti sérfræðinga. Fylgst er með líðan, blóðþrýstingi, hjartsláttarhraða og hjartalínuriti fyrstu vikurnar þannig að fólk þjálfi markvisst upp þol og vöðvastyrk. Sjúkraþjálfarar sérsníða þjálfunaráætlun út frá undirliggjandi sjúkdómum, færni og þreki hvers og eins. Eðlilegt er að grunnendurhæfingu sé lokið um það bil 3-4 mánuðum eftir útskrift af sjúkrahúsi. Sjúkraþjálfarar veita leiðbeiningar um æskilega áframhaldandi þjálfun. Margir þjálfa árum saman í framhaldshópum á HL stöðvum, slíkir hópar eru víðsvegar um landið. Tryggja þarf öflugt aðgengi að þjónustu Hjarta- og lungna hópar sem nú eru starfræktir eru þéttsetnir og oft biðlistar að komast að í þjálfun. Brýn þörf er á að fjölga hópum og úrræðum fyrir þennan sjúklingahóp alls staðar á landinu. Hentugast er að þjálfun sé í nærumhverfi heimilis eða vinnu. Mikilvægt er að tryggja aðgengi sem flestra að sérhæfðri hópþjálfun þar sem markvisst eftirlit tryggir öryggi og árangur þjálfunarinnar. Einstaklingar sem eru með áhættuþætti og/eða með undirliggjandi hjarta- og æðasjúkdóma ættu að stunda reglubundna og markvissa þjálfun og taka á lífsstílstengdum áhættuþáttum. Þannig má draga úr framgangi sjúkdóms og minnka líkur á veikindum tengdum hjarta og æðakerfi. Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er haldinn ár hvert þann 8. september og eru hjarta- og æðasjúkdómar eitt af áhersluatriðunum nú í ár. Hjartaendurhæfing á Íslandi – fyrir þá sem hafa efni á Þann 1. september síðastliðinn tóku gildi komugjöld, umfangsmiklar breytingar á greiðsluþátttöku almennings vegna meðferðar hjá sjúkraþjálfurum og öðrum heilbrigðisstéttum. Kostnaðarauki almennings verður mikill og mun í mörgum tilfellum hafa áhrif á möguleika fólks til að nýta sér þjálfun. Hjartaendurhæfing er úrræði til lengri tíma. Fagaðilar hafa áhyggjur af að aukinn kostnaður muni leiða til að stækkandi hópur fólks hafi ekki fjárhagslega getu til að nýta sér hjartaendurhæfingu. Fram kemur í klínísku leiðbeiningum Evrópsku hjartasamtakanna að því miður sé staðreyndin sú að töluvert skorti á að hjartaendurhæfing sé nýtt sem skyldi. Leiða má líkur á að svo sé einnig hérlendis og aukist enn frekar með komugjöldum. Hjartaendurhæfing getur dregið úr framgangi sjúkdóms og þar með fækkað endur innlögnum á sjúkrahús og dregið úr líkum á endurteknum áföllum. Hjartaendurhæfing er ekki aðeins hluti af bata eftir veikindi eða aðgerð heldur er hún mikilvæg fjárfesting í áframhaldandi heilsu, færni og lífsgæðum. Það er ekki einungis dýrmætt fyrir einstaklinginn heldur einnig þjóðfélagslega hagkvæmt. Höfundar eru sjúkraþjálfarar í hjartaendurhæfingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar