Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar 7. september 2026 08:31 Ég er ekki velkominn í ákveðna götu í austurhluta höfuðborgarinnar, nánar tiltekið í einbýlishús í enda götunnar. Þar má ég ekki hvíla lúin bein, blása lífi í lífsneistann sem stundum er við það að slokkna, ganga um óspillta náttúru handan hússins og virða fyrir mér fegurðina sem Móðir náttúra bíður þar upp á. Íbúar götunnar vilja ekki sjá mig því þeir telja mig hættulegan. Ég fékk nýverið að líta inn í hug íbúanna er ég spjallaði við einn af fimm fulltrúum Geðhjálpar er sátu skömmu áður agndofa fund með nágrönnum einbýlishússins, sem félagið festi nýlega kaup á. Til stendur að setja þar á laggirnar skjólshús þar sem fólk eins og ég, sem glímir við geðrænar áskoranir, getur leitað skjóls í nærandi umhverfi fjarri geðdeildum Landspítalans. Í húsi sem þessu vinnur ekkert geðheilbrigðisstarfsfólk, einungis jafningjar þeirra sem halla þar höfði. Fulltrúinn lýsti ofsafengnum viðbrögðum íbúa götunnar sem voru svo galin að ég hef sjaldan heyrt annað eins. Ekki hyggst ég endurtaka það sem ég heyrði en tel rétt að minnast á ummæli eins af íbúum götunnar. Hann sagði eitthvað á þessa leið: „Ég er fylgjandi starfsemi sem þessari, en ég vil ekki hafa hana nærri mér,“ ummæli sem heyrast því miður reglulega í fjölmiðlum, nú síðast vegna kaffistofu Samhjálpar. Ég hef hugsað talsvert um ummæli sem þessi og hvað liggur þeim til grundvallar. Fólk sér fyrir sér ýmsar ógnir sem gætu beinst að þeim og börnum þeirra. Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að manneskjur sem glíma við geðrænar áskoranir eru almennt ekki líklegri til þess að beita ofbeldi en annað fólk. Það er því ljóst að ofsafengnu viðbrögðin eru ekki á rökum reist og virðist miklu frekar endurspegla djúpstæða fordóma gegn þeim sem sýna frávik frá því sem almennt er talið „venjuleg“ hegðun. Þau sem ekki vilja fólk eins og mig nærri sér gætu lært eitt og annað af Sovét-Úkraínska rithöfundinum Vasílíj Grossmann. Hann stafaði sem blaðamaður dagblaðs Rauða hersins í seinni heimstyrjöldinni og fylgdist í návígi öll stríðsárin með blóðugri baráttu sovéskra hermanna gegn innrásarliði nasista. Reynsluna notaði hann síðan til þess að skrifa tvö af stórvirkjum bókmennta 20. aldar, Stalíngrad og Líf og forlög. Ein af lykilhugmyndum síðara ritsins er það sem Grossmann kallaði „fáránlega gæsku“, hugmynd sem hann var farinn að móta í dagbók sinni á stríðsárunum. Þar segir á einum stað: „Ef við einhvern tíma vinnum þetta hryllilega miskunnarlausa stríð, þá verður það vegna þess að meðal þjóðarinnar finnast slík göfug hjörtu, slíkar réttlátar manneskjur, sálir sem búa yfir gríðarlegu örlæti, mæður sona … sem nú fórna lífi sínu fyrir þjóðina með sama örlæti og fékk gömlu konuna frá Tula til þess að gefa okkur allt sem hún átti. Slíkir einstaklingar eru fátíðir meðal þjóðarinnar, en þeir munu sigra.“ Það er magnað að hugsa til þess að Grossmann skildi ná að móta svona fallega hugmynd mitt í versta hildarleik sem mannkyn hefur upplifað. Manngæska Grossmanns var mikil. En hvar er manngæska íbúa götunnar? Þeir búa allir í einbýlishúsum, virðast lifa við talsverðan munað en geta ekki unað okkar minnstu bræðrum og systrum að halla höfði í húsi í enda götunnar. Ef íbúunum hugnast ekki að sækja visku til guðlauss rithöfundar þá er nærtækara að benda þeim á Matteusarguðspjall, 25:40-46. Þar má sjá hvað Jesús sagði um þau sem sýndu af sér manngæsku og þau sem gerðu það ekki: „Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér. Síðan mun hann segja við þá til vinstri handar: Farið frá mér, bölvaðir, í þann eilífa eld sem búinn er djöflinum og árum hans. Því hungraður var ég en þér gáfuð mér ekki að eta ... gestur var ég en þér hýstuð mig ekki ... ég var sjúkur og í fangelsi en ekki vitjuðuð þér mín ... Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð ekki einum minna minnstu bræðra, það hafið þér ekki heldur gert mér.“ Nú stendur Geðhjálp frammi fyrir því að neyðast til þess, vegna andstöðu nágrannanna, að fresta opnun skjólshússins um að minnsta kosti eitt ár. Í ljósi þessa þá tel ég rétt að spyrja íbúa götunnar: Hvar er náungakærleikurinn? Höfundur er doktor í vísindasagnfræði, rithöfundur og hefur í áratugi glímt við erfiðar geðrænar áskoranir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar