Sport

Áhrifa­valdar sýna van­virðingu á risamóti í tennis

Sindri Sverrisson skrifar
Naomi Osaka vill geta einbeitt sér að tennisnum og að allir virði reglur íþróttarinnar. Áhrifavaldar á borð við Isabellu Lauren hafa fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir hegðun sína á US Open.
Naomi Osaka vill geta einbeitt sér að tennisnum og að allir virði reglur íþróttarinnar. Áhrifavaldar á borð við Isabellu Lauren hafa fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir hegðun sína á US Open. Samsett/Getty/Instagram

Sú ákvörðun mótshaldara Opna bandaríska mótsins í tennis að bjóða enn fleiri áhrifavöldum á mótið hefur bæði kosti og galla. Naomi Osaka biður áhorfendur um að sýna íþróttinni og keppendum virðingu.

Dómarinn neyddist til að gera hlé á leik Osaka við hina rússnesku Anastasiu Zakharova á mánudaginn, vegna of mikils hávaða í áhrifavöldum sem voru að taka upp myndefni á áhorfendasvæði sínu.

Bandaríska tennissambandið hefur verið duglegt við að fá áhrifavalda á mótið, til þess að auka umfjöllun og áhorf, og útdeildi í ár um 100 pössum til þeirra eftir að hafa boðið 54 áhrifavöldum í fyrra.

En áhrifavaldarnir taka með sér skær hringljós og virðast ekki alltaf gera sér grein fyrir því hvaða hefðir og reglur gilda á tennisleikjum. 

Til viðbótar við leikinn sem þurfti að stöðva á mánudaginn þá hefur það til að mynda einnig vakið reiði á samfélagsmiðlum þegar einn áhrifavaldanna birti myndaröð af sér af vellinum, þar sem sást að leikur var í fullum gangi í bakgrunninum á meðan að myndirnar voru teknar.

Osaka vann leikinn á mánudaginn en tjáði sig svo um áhrifavaldana eftir sigurinn á Katerina Siniakova í þriðju umferð í gær:

„Ég held að það sé augljóst að ef þú kemur á íþróttaviðburð þá verður þú að virða íþróttina. Mér finnst það vera almenn kurteisi að lesa sér til um íþróttina, sérstaklega siðareglurnar,“ sagði Osaka.

„Ég held að það gæti verið gott fyrir fólk að gera tennisíþróttina vinsæla fyrir sinn markhóp, en ég held að það þurfi að stjórna því mun betur, sérstaklega í aðstæðum eins og í fyrstu umferð hjá mér.

Á heildina litið held ég að það séu gríðarlega jákvæðir þættir. Maður vill að fólk haldi áfram að stækka íþróttina. Ég held bara að það þurfi að vera á þann hátt að allir þekki reglurnar og siðina,“ sagði Osaka.

Hún var ánægð með dómarann í dag sem lagði áherslu á að áhorfendur þyrftu að vera hljóðir.

„Ég held að í fyrsta leiknum mínum, ég var ekki alveg að fylgjast vel með því ég einbeiti mér venjulega bara að leiknum og vellinum, en það kom augnablik þar sem fólk var að hrópa og annað, og það heyrðist nokkuð greinilega. Ég held að það hafi líka truflað andstæðing minn,“ sagði Osaka sem næst keppir við hina belgísku Elise Mertens.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×