Formúla 1

Lando Norris stofnar sitt eigið lið

Andri Broddason skrifar
Lando Norris hefur stofnað liðið LN4 Fusion sem mun hjálpa yngri ökumönnum að komast í Formúlu 1.
Lando Norris hefur stofnað liðið LN4 Fusion sem mun hjálpa yngri ökumönnum að komast í Formúlu 1. Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Lando Norris hefur búið til sitt eigið lið fyrir unga ökumenn sem á að gefa þeim greiðari leið í Formúlu 1.

Lando Norris hefur stofnað liðið LN4 Fusion sem mun vera með bíla í nokkrum mótaröðum fyrir unga ökumenn. Liðið mun byrja að keppa á næsta ári og er markmið liðsins að auðvelda ungum ökumönnum að komast í Formúlu 1.

Rene Rosin mun reka liðið en hann er þekktur fyrir að hafa stofnað Prema sem er sigursælasta kappakstursliðið fyrir yngri ökumenn. Margar stjörnur sem eru í Formúlu 1 í dag voru hluti af Prema og þar má nefna Kimi Antonelli, Oscar Piastri og Charles Leclerc.

Lando Norris segir að liðið muni hjálpa ungum ökumönnum að fá tækifæri sem þeir myndu annars ekki fá.

„Ég hef verið mjög heppinn með að hafa frábært fólk í kringum mig í gegnum allan ferilinn minn og ég veit að það krefst meira en bara hæfileika að komast í Formúlu 1. Þú þarft rétta fólkið í kringum þig og réttu tækifærin á réttum tíma.“

LN4 Fusion mun hafa lið í ítölsku Formúlu 4 mótaröðinni, Evrópsku Formúlu mótaröðinni og Formúlu 3 á næsta ári. Einnig er stefnan sett á að vera með lið í Formúlu 2 á næsta ári en það hefur ekki fengist staðfest ennþá.

Liðið mun vera staðsett á Ítalíu sem er kannski óvænt þar sem Lando Norris er breskur en býr í Mónakó. Það eru þó fullt af keppnum haldnar á Ítalíu og í löndunum þar í kring þannig að það getur verið auðvelt fyrir ökumenn að ferðast milli keppna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×