„Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Sindri Sverrisson skrifar 1. september 2026 20:58 Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði jafnteflið sanngjarnt. vísir/Hulda Margrét „Við sýndum mikinn styrk með því að koma til baka og ná okkur í stigið. Halda okkur fyrir ofan Fram. Við megum ekki gleyma að Fram er þarna líka og akkúrat núna er Fram keppinautur okkar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 1-1 jafnteflið í toppslagnum við Víkinga í kvöld.
Ármann Ingi Finnbogason kom Víkingi yfir í uppbótartíma en þá var enn tími fyrir Arnór Ingva Traustason til að jafna metin. Niðurstaðan er samt sem áður sú að Víkingar eru með átta stiga forskot á toppnum, á bæði KR og Fram, þegar aðeins sex umferðir eru eftir. Er þetta búið spil? „Akkúrat núna erum við að berjast um annað sætið við Fram. Ég held að það sjái það allir. Það getur enginn platað sig og sagt annað en að Víkingar eru í kjörstöðu. Ég gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna, án þess að vera í einhverjum hugarleikjum með það. Þeir eru í bílstjórasætinu og við erum ekki endilega að horfa til þeirra þegar kemur að stigasöfnun. Við erum að horfa til þeirra þegar kemur að því að jafna frammistöðu þeirra og nálgast þá þannig,“ sagði Óskar Hrafn. Klippa: Óskar stoltur en beinir nú sjónum að Fram Fyrirliði hans, Aron Sigurðarson, var alls kostar ósammála og sagðist handviss um að Víkingar ættu eftir að missa af fullt af stigum á lokasprettinum. „Við erum bara betra lið. Þeir eru bensínlausir. Haltrandi. Ef þeir ná að haltra í átt að þessum titli þá bara „fair play“ en þeir eru með besta lið landsins á hælum sér. Við munum gera okkar og sjáum hverju það skilar fyrir lokaleikinn í Víkinni. En það sjá allir að við erum besta liðið á landinu í dag,“ sagði Aron. Sölvi Geir: Áttum að fá víti og nýta færin Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði þessi ummæli ekki svaraverð. Hann harmaði það að Víkingar skyldu ekki komast yfir í fyrri hálfleik. „Við áttum að fá víti og að mér skildist átti markið að standa [sem dæmt var af vegna rangstöðu]. Það er mjög svekkjandi þegar stórar ákvarðanir falla ekki með okkur og eru teknar af okkur. Við fengum í raun og veru mikið betri færi en þeir, sem hefðu átt að koma okkur yfir og í betri stöðu. Í seinni hálfleik fannst mér við ná góðri stjórn á leiknum, lagfærðum aðeins pressuna og í raun fannst mér engin hætta frá KR í seinni hálfleik,“ sagði Sölvi Geir. Beint af æfingasvæðinu Hann fékk frábært mark frá varamanninum Ármanni Inga sem gerði það sama og á æfingu í gær: „Í gær var ég í rauninni að æfa nákvæmlega sama skot. Núna sendi Niko á mig og ég tek bara manninn á og set boltann í fjærhornið. Klára þetta,“ sagði Ármann.
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira