Innherji

Krefst riftunar á nærri 500 milljóna greiðslum til stærsta við­skipta­vinar Play

Hörður Ægisson skrifar
Arnar Þór Stefánsson, skiptastjóri þrotabús Play, og Elías Skúli Skúlason, stjórnarformaður og stór hluthafi í Airport Associates. Elías Skúli var jafnframt varaformaður stjórnar og meðal umsvifamestu hluthafa í Play áður en það féll síðasta haust. 
Arnar Þór Stefánsson, skiptastjóri þrotabús Play, og Elías Skúli Skúlason, stjórnarformaður og stór hluthafi í Airport Associates. Elías Skúli var jafnframt varaformaður stjórnar og meðal umsvifamestu hluthafa í Play áður en það féll síðasta haust. 

Þrotabú Play hefur höfðað mál gegn Airport Associates og tengdum félögum þar sem krafist er riftunar á greiðslum upp á samtals um 470 milljónir sem voru inntar af hendi í aðdraganda falls flugfélagsins. Flugafgreiðslufyrirtækið varð fyrir miklum áhrifum af gjaldþroti Play í fyrra þegar tekjur og afkoma skruppu saman, en ráðandi hluthafi þess var jafnframt stór fjárfestir og varaformaður í stjórn Play.


Tengdar fréttir

Þrota­búið fengi hlut­deild í mögu­legum endurheimtum starf­seminnar á Möltu

Hlutabréfaverð Icelandair hefur rokið upp eftir að greint frá áformum þess um að kaupa tæplega helmingshlut í Fly Play Europe en forstjóri flugfélagsins segir aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu geta skapað „talsverð hagræðingartækifæri.“ Gangi samkomulagið eftir þá mun þrotabú Play fá hlutdeild í mögulegum endurheimtum skuldabréfaeigenda þegar starfsemin á Möltu fer af stað.

Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum

Skiptastjóri þrotabús Play segir ólíklegt að eignir þrotabúsins dugi til að mæta öllum forgangskröfum á hendur því. Þá er ágreiningur milli starfsfólks og þrotabúsins um hvort starfsfólk eigi rétt á uppsagnarfresti upp á þrjá eða fjóra mánuði.

Kæmi „veru­lega á óvart“ ef fjár­mögnunin hjá Play væri ekki sú síðasta í langan tíma

Play er ekki að fara draga saman seglin frekar en það sem kynnt hefur verið samhliða umbreytingu á viðskiptalíkani félagsins, að sögn forstjórans, sem telur að „mikill“ afkomubati sé í kortunum og það kæmi honum því „verulega á óvart“ ef nýafstaðin fjármögnun væri ekki sú síðasta í langan tíma. Hann viðurkennir að það hefðu verið margir kostir við að afskrá flugfélagið úr Kauphöllinni, eins og meðal annars færri ástæður til að skrifa fréttir um fyrirtækið oft byggðar á „litlum og jafnvel úreltum“ upplýsingum, en hins vegar var skýr krafa meðal lykilfjárfesta að Play yrði áfram á markaði.

Vinna að því að færa átta vélar frá ís­lenska félaginu yfir til þess malt­neska

Fulltrúi skuldabréfaeigenda sem lögðu Play til samtals um 2,8 milljarða króna í lok síðasta mánaðar á nú viðræðum við stjórnendur flugfélagsins og flugvélaleigusala þess um að færa átta þotur yfir til maltneska félagsins. Gert er ráð fyrir að sú yfirfærsla klárist í vikunni og er búið að boða til fundar með kröfuhöfum í næstu viku. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×