Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar 1. september 2026 14:30 „Sjálfstæði Íslands er ógnað af leynilegri áætlun yfirvalda um að koma Íslandi undir yfirráð erlends stórveldis.” Þetta er fullyrðing númer eitt. Hún er ansi hressandi. Berum hana saman við aðra setningu og sjáum hvort spennan magnist. “Með framlagningu þessa frumvarps er leitast við að tryggja fullnægjandi innleiðingu bókunar 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samninginn) í íslenskan rétt.” Fyrri fullyrðingin er grófleg samantekt á málflutningi þeirra sem eru á móti framlögðu frumvarpi um svokallaða Bókun 35. Fullyrðingin heldur athygli vegna þess að hún er spennandi. Hún inniheldur ráðgátu, skúrk, svik, baráttu frelsis gegn höftum og kúgun, en fyrst og fremst býður hún þér, lesandi góður, sem og þeim sem mælir hana, hlutverk frelsishetjunnar sem stendur keik og hugrökk andspænis hinu illa ofurafli. Seinni fullyrðingin er hins vegar svo þurr og leiðinleg að hún ætti ekkert erindi í opinbera umræðu ef ekki væri fyrir samhengið við hina fyrri. Það er vegna þess að Bókun 35 er drepleiðinleg. Það er ekkert áhugavert við hana. Hún er skraufþurr lagfæring á lagatæknilegum vankanta sem rekur rætur sínar til uppruna EES-samningsins. Reyndar var Bókun 35 samþykkt og innleidd strax þá, og finnst í 3. gr. laga nr. 2/1993 í dag, þar sem hún hefur verið í meira en þrjá áratugi. Ef lesandinn er reiðubúinn til að gera mér smá greiða og reyna allt sitt besta til þess að halda sér vakandi í gegnum smávegis af þessari drepleiðinlegu lögfræði, þá ætla ég að útskýra hvers vegna frumvarp um Bókun 35 er nú til svokallaðrar umræðu á Alþingi. Löggjöf er svolítið eins og tölvuforrit fyrir samfélagið. Alveg eins og að það getur komið upp galli í einhverju appi í símanum þínum, getur komið upp galli í löggjöf. Þegar framleiðandi appsins í símanum þínum tekur eftir gallanum, þá lagar hann vonandi gallann, og þá þarftu ekki meira að pæla í honum eftir næstu uppfærslu á appinu. Hið sama gildir um löggjöf, nema að allt gerist hægar. Gallar í löggjöf koma yfirleitt ekki upp fyrr en reynir á löggjöfina fyrir dómi. Bókun 35, sem hefur alltaf verið hluti af EES-samningnum, við samþykktum fyrir meira en þremur áratugum, og hefur verið hluti af íslenskri löggjöf í allan þann tíma, er dæmi um löggjöf sem reyndist vera með smá galla. Markmið greinarinnar er að tryggja íbúum EES-svæðisins sameiginlegan rétt. Í nokkrum hæstaréttardómum hefur hins vegar komið fram, að ákvæðið er ekki nógu skýrt til þess að allir lesendur þess skilji það á sama veg. Á lagamáli heitir þetta réttaróvissa og þykir hún slæm. Hún er galli. Frumvarpið sem nú liggur fyrir er lagfæring á þessum galla. Þetta er sama ákvæðið, með sama markmið, sem á að gera nákvæmlega það sama og núgildandi ákvæði var ætlað að gera. Þetta er lagatæknileg lagfæring á galla í löggjöf. En þetta er drepleiðinlegt stöff. Það er enginn skúrkur, enginn svikari, ekkert samsæri til að svipta þig frelsinu og verst af öllu, er að það er engin hetja til að berja sér á brjóst fyrir að verja land og þjóð gegn ægivaldi og kúgun útlendinganna í erlenda stórveldinu. Hver í ósköpunum ætti að nenna að kynna sér þetta mál? Svarið er: Enginn. Ef allir kjósendur þekktu jafnvel bara grunnstaðreyndirnar í Bókun 35, þá væri enginn að tala um hana, vegna þess að hún er einfaldlega ekki það áhugaverð. Eina ástæðan fyrir því, að Bókun 35 er fyrirferðamikil í opinberri umræðu, er sú að lagatæknilega orðalagið er rétt svo nógu framandi til þess að stjórnmálamenn, ýmist af óheiðarleika eða strangheiðarlegri vangetu til að skilja, geti búið til hugrenningartengsl við þessi spennandi fyrirbæri; skúrkinn, svikin, frelsið, hetjuna, og síðast en ekki síst, auðvitað, útlendingana sem vilja taka allt dótið okkar. Eftir stendur að rétt eins og var tilfellið í geðshræringunni yfir Orkupakka 3, þá mun málið steingleymast um leið og það verður samþykkt, vegna þess að öll taugaveiklunin - ekki sum, heldur öll - er grundvölluð alfarið á þeim metnaði sumra stjórnmálamanna, að fá standandi lófaklapp eftir góða sýningu, sem er lítið mál þegar hún er í samkeppni við fyrirlestur um stjórnsýslufræðilega lagatækni eða eitthvað þaðan af leiðinlegra. Þegar þessari kostulegu sýningu er síðan lokið, þá heldur lífið áfram sinn vanagang, og það eina sem situr eftir er fjarlæg minning um hressandi spennumynd sem væri kannski gaman að sjá einhvern tíma aftur. En hafið engar áhyggjur, hún verður endursýnd. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Hrafn Gunnarsson Bókun 35 Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar