Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 13:03 Listakonan Þórdís Erla Zoëga stóð fyrir farsælli sýningaropnun í Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Aðsend Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.
Þórdís, sem er fædd árið 1988, hefur sýnt verk sín víða, meðal annars í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Helsinki, Amsterdam, Berlín og Basel, auk þess að taka þátt í sýningum í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og á Listahátíð í Reykjavík. Hún var úti í tilefni af þátttöku sinni á Norrænu listamessunni Chart Art Fair, þar sem hún sýndi verk í samstarfi við Berg Contemporary í Reykjavík. Þórdís starfar einnig með danska galleríinu SPECTA í Kaupmannahöfn og mun halda einkasýningu þar í nóvember næstkomandi. Sýningin í sendiráðinu stendur til 11. nóvember næstkomandi. Í fréttatilkynningu segir: „Sýningin Samrými/Common Space/Fællesrum fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra. Manneskjan leitast við að eiga sitt eigið svæði en sækir á sama tíma í að tilheyra stærra samfélagi. Samfélagið getur verið líkamlegt innan viss landsvæðis en einnig ósýnilegt, stafrænt rými sem við deilum í skýjunum. Einkarými er þannig orðið sífellt huglægara hugtak; þótt við leitumst við að eignast okkar eigin blett, viljum við hafa frelsið til að ferðast um sameiginleg og ósýnileg rými. Í sendiráðinu fá þessar spurningar sérstaka merkingu þar sem þjóðir fá sinn eigin landskika til umráða innan annars lands þar sem líkamlega og huglæga rýmið skarast.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni: Viktoría Hlín Ágústsdóttir, Elfur Örlygsdóttir og Eir Örlygsdóttir í góðum fíling.Aðsend Verk Þórdísar eru bæði speglandi og gegnsæ.Aðsend Stefanía K. Bjarnadóttir frá sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn og Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen frá Íslandsstofu. Aðsend Fólk lyfti glösum fyrir listinni. Í sófanum sitja Sandra Gunnarsdóttir, Amna Hasecic og Magnús Jóhann Ragnarsson.Aðsend Listin sameinar fólk! Aðsend Fólk mætti í sínu fínasta pússi.Aðsend Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar og Katrín Elvarsdóttir.Aðsend Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Þórdís Erla Zoega listakona og Cecilie C. Ragnheiðardóttir Gaihede forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar.Aðsend Fólk var í góðum gír í dönsku sólinni.Aðsend Gleðin var í loftinu.Aðsend Knús og kram.Aðsend Halla Helgadóttir forstöðumaður Hönnunarmiðstöðvar, Loji Höskuldsson myndlistarmaður, Halla Benediktsdóttir forstöðumaður Jónshúss og Stefanía K. Bjarnadóttir hjá Íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Aðsend Björk Hrafnsdóttir sýningarstjóri og Magnús Jóhann píanóleikari á spjalli hér til hægri.Aðsend Pétur Geir myndlistarmaður spjallaði við Ásdísi Björgu.Aðsend Fjöldi fólks kom saman á sýningu Þórdísar.Aðsend Aldís Guðmundsdóttir, ungur listunnandi og Ásdís Björg Ágústsdóttir.Aðsend Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari mætti með dóttur sinni Hugrúnu Eglu Einarsdóttur. Aðsend Stefanía K. Bjarnadóttir og Þórdís skemmtu sér vel.Aðsend Í verkaröðinni Interspace vinnur Þórdís Erla Zoëga með geometríska formgerð fána Norðurlandanna. Litir og hlutföll fánanna eru brotin niður og endursköpuð í gegnsæjum akrýlverkum með litbreytifilmu þar sem til verða svokölluð ómöguleg rými. Aðsend Una Jóna Sigurðardóttir og séra Guðni Már sendiráðsprestur í Danmörku slá á létta strengi. Aðsend Gestir tylltu sér út og nutu sólarinnar.Aðsend Verk Þórdísar speglast einstaklega skemmtilega.Aðsend Listrænt spjall.Aðsend Þórdís Zoega, Björk Hrafnsdóttir, Iona Sjöfn Huntington-Williams og Helga Páley.Aðsend Stefanía K. Bjarnadóttir og Katrín Katla Sverrisdóttir. Aðsend Björk Hrafnsdóttir, Pétur Geir og Magnús Jóhann.Aðsend Andlit mætast á einstakan hátt í gegnum verk Þórdísar. Aðsend Þórdís Erla og Ingibjörg Jónsdòttir, gallerís-stjóri Berg Contemporary. Aðsend
Danmörk Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira