„Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 29. ágúst 2026 18:46 Arna Sif Ásgrímsdóttir er einn besti varnarmaður Bestu deildarinnar. vísir/Guðmundur Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var afar svekktur með markalaust jafntefli gegn Þór/KA í Laugardalnum. Honum fannst heimakonur stýra leiknum nánast frá upphafi til enda en gæðin vantaði á síðasta þriðjungi vallarins. „
Mér fannst við stýra þessum leik eiginlega bara frá A til Ö. Það vantaði aðeins upp á ákvarðanatöku og gæði hjá okkur á síðasta þriðjungnum til þess að búa til nógu góð færi til að skora,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik. Hann tók þó ekkert af gestunum, sem vörðust af mikilli festu og fengu sjálfir dauðafæri í síðari hálfleik. „Þær vörðust mjög vel og vörðu markið sitt með kjafti og klóm. Þær fá svo sennilega besta færi leiksins þegar þær sleppa í gegn, en það getur gerst þegar við förum svona hátt á völlinn.“ „Það er rosalega svekkjandi að stýra leik svona í 90 mínútur og fá ekki meira en þetta út úr honum.“ Þróttur fékk fjölda hornspyrna í leiknum en tókst ekki að brjóta ísinn. Jóhann Kristinn segir slíka hluti stundum fara að lifa sínu eigin lífi. „Þetta er stundum svona. Þegar þú byrjar að skora eftir hornspyrnur, eins og Arsenal í fyrra, þá skorarðu aftur og aftur. Það fellur svolítið með þér. Svo þegar þú nærð ekki að skora getur það haldið áfram líka. Það virðist vera ákveðið trend í þessu.“ Hann benti sérstaklega á frammistöðu Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur í vörn Þórs/KA. „Við megum ekki gleyma því að Arna Sif Ásgrímsdóttir var þarna inni í teig hjá þeim. Hún skallaði nánast hverja einustu hornspyrnu frá og varði að minnsta kosti tvö, ef ekki þrjú, skot sem stefndu beint í netið.“ „Arna Sif spilaði hér eins og þrír leikmenn og ég held að það hafi verið stór munur í dag.“ Breiðablik bíður Þróttar í lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni eftir rúma viku. „Núna þurfa menn aðeins að hvíla sig, svo æfum við vel og mætum sterkari í næsta leik. Við ætluðum að taka þrjá punkta hér í dag og verðum þá bara að gera það á mánudaginn á móti Breiðabliki.“
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Þór Akureyri Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira