Svandís í ritstjórastól Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. ágúst 2026 10:18 Svandís Svavarsdóttir er nýr ritstjóri Breiðfirðings. Vísir/Vilhelm Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra í ýmsum ráðuneytum, sagði skilið við stjórnmálin fyrr á árinu og hefur nýlega tekið að sér nýtt hlutverk. Svandís er nýr ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings sem er gefið út árlega af Breiðfirðingafélaginu.
Svandís greindi frá þessu með færslu í Fésbókarhópnum „Íbúar Stykkishólms og nágrennis“ í gær. „Ég tók nýlega við ritstjórn tímaritsins Breiðfirðings og er nú að undirbúa næsta hefti. Mig langar þar að birta stutta og myndríka grein um hvernig fólk umhverfis Breiðafjörð upplifði almyrkvann 12. ágúst síðastliðinn,“ skrifaði Svandís í færslunni. Móðir Svandísar, Jónína Benediktsdóttir, var ættuð úr Breiðafirði og af Ströndum og hefur Svandís varið miklum tíma í Breiðafirði gegnum tíðina og kynnst eyjalífinu þar. Svandís sagði skilið við stjórnmálin eftir rúmlega tuttugu ára feril þar sem hún var borgarfulltrúi í þrjú ár, þingkona í fimmtán og ráðherra í um ellefu ár í þremur ólíkum ríkisstjórnum. Breiðfirðingafélagið er átthagafélag héraðanna við Breiðafjörð og snýr starfsemi þess meðal annars að Breiðfirðingakórnum, Bridgedeild félagsins og útgáfu tímaritsins Breiðfirðings, sem hefur komið út síðan árið 1942.
Menning Tímamót Vistaskipti Mest lesið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira